Vísitala neysluverðs í janúar 2007


Hagstofa Íslands hefur birt vísitölu neysluverðs í janúar 2007 sem er 266,9 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0, 26 % frá fyrra mánuði.

Vísitala neysluverðs í janúar 2007, sem er 266,9 stig, gildir til verðtryggingar í febrúar 2007. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 5.270 stig fyrir febrúar 2007.

Fréttatilkynningu Hagstofunnar um vísitölu neysluverðs er að finna á: http://www.hagstofa.is