Hitaveita Rangæinga - Ársuppgjör 2006


Helstu niðurstöður úr ársreikningi 2006

Allar tölur eru í þús. kr.				
				
Rekstrarreikningur	1/1-31/12 2006	1/1-31/12 2005	1/1-31/12 2004	1/1-31/12 2003
				
Rekstrartekjur	104.395	83.370	107.822	105.463
Rekstrargjöld	(41.671)	(49.869)	(43.020)	(48.981)
Rekstrarhagn. f. afskr. (EBIDTA)	62.725	33.502	64.802	56.482
Afskriftir	(26.759)	(25.156)	(47.789)	(45.729)
Fjármagnsliðir	(62.997)	(47.097)	(44.895)	(38.442)
Tap fyrir aðra liði	(27.032)	(38.751)	(27.882)	(27.689)
Óreglulegar tekjur	0	0	0	90.000
Tekjuskattur	78.142			
Hagnaður (tap) ársins	51.110	(38.751)	(27.882)	62.311
				
Handbært fé frá rekstri	39.076	18.640	26.652	117.370
				
 
				
Efnahagsreikningur	31.12.2006	31.12 2005	31.12 2004	31.12 2003
				
Fastafjármunir	740.894	637.729	605.408	619.855
Veltufjármunir	27.670	28.335	77.788	106.481
Eigið fé	178.167	127.057	139.164	171.915
Langtímaskuldir	515.370	490.856	498.318	505.565
Skammtímaskuldir	75.027	48.151	45.715	48.856
				
Kennitölur:				
Veltufjárhlutfall	0,37	0,59	1,70	2,18
Eiginfjárhlutfall	23,18%	19,08%	20,37%	23,67%

Rekstrarreikningur Hitaveitu Rangæinga sýndi hagnað upp á 51,1 milljón króna árið 2006 samanborið við 38,8 milljóna króna tap árið 2005.

Rekstrartekjur ársins námu 104,4 milljónum króna en voru 83,4 milljónir árið áður. 

Hagnaður fyrirtækisins fyrir afskriftir og fjármagnsliði, EBITDA, var 62,7 milljónir króna samanborið við 33,5 milljónir króna árið 2005

Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 63,0 milljónir króna árið 2006.  Árið 2005 voru fjármagnsliðir neikvæðir um 47,1 milljón króna. 

Heildareignir 31.12.2006 voru 768,6 milljónir króna en voru 666,1 milljónir króna 31.12.2005.

Eigið fé 31.12.2006 var 178,2 milljónir króna en var 127,1 milljón króna 31.12.2005.
 
Heildarskuldir  31.12.2006 voru 590,4 milljónir króna en voru 539,0 milljónir 31.12.2005.

Eiginfjárhlutfall var 23,18% í lok árs 2006 en var 19,08% í lok ársins 2005. 

Með nýjum lögum nr. 50/2005 um skattskyldu orkufyrirtækja verður fyrirtækið skattskylt í samræmi við 2. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt.  Lögin koma til framkvæmda við álagningu tekjuskatts á árinu 2007 vegna tekna á árinu 2006.  Reiknuð tekjuskattsinneign vegna ársins 2006 nam 78 milljónum króna.

Þann 1. janúar 2007 sameinuðust Orkuveita Reykjavíkur og Hitaveita Rangæinga.

Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, í síma 516-6000.


Attachments

Hitaveita Ranginga - Arsuppgjor 2006.pdf