2006


Miðvikudaginn 23. maí 2007 var ársreikningur Snæfellsbæjar 2006 tekinn til
fyrri umræðu.  Eins og sveitarstjórnarlög kveða á um, skal fjalla um
ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn. Síðari umræða um
ársreikningurinn verður fimmtudaginn 14. júní n.k. 

Í reglugerð nr. 944/2000, um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga, sem tók
gildi 1. janúar 2001, eru ákvæði um reikningsskil sveitarfélaga. Þar er gert
ráð fyrir að sveitarfélög hagi bókhaldi sínu og reikningsskilum í samræmi við
ákvæði laga um bókhald nr. 145/1994 og ársreikninga nr. 144/1994 að svo miklu
leyti sem sveitarstjórnarlög mæla ekki fyrir á annan veg eða reglugerðir settar
á grundvelli þeirra.  Ársreikningar sveitarfélaga skulu byggðir á almennum
reikningsskilaaðferðum. 

Ársreikningur Snæfellsbæjar fyrir árið 2006 byggir á sömu
reikningsskila¬aðferðum og árið áður í samræmi við framangreind lög og reglur. 

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu um 1.086,8 millj. króna samkvæmt
samanteknum rekstrarreikningi fyrir A- og B-hluta en fjárhagsáætlun gerði ráð
fyrir rekstrartekjum um 999,5 millj. króna. Rekstrartekjur A- hluta námu um
862,6 millj. króna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum um 790,2
millj. króna. 

Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A-
og B-hluta var tap að fjárhæð um 26,7 millj. króna en samkvæmt fjárhagsáætlun
var gert ráð fyrir tapi upp á 6,3 millj. króna. Afkoman varð því örlítið verri
en áætlun gerði ráð fyrir, eða sem nemur 20,4 millj. króna.  Rekstrarniðurstaða
A-hluta var tap að fjárhæð 3,9 millj. króna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir
hagnaði upp á um 24,4 millj. króna. Afkoman varð því lakari sem nemur 28,3
millj. króna.  Ástæða þessa er gríðarleg hækkun á lífeyrisskuldbindingum, en
þær voru 38,9 millj. króna fyrir árið 2006.  Fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir
lífeyrisskuldbindingum upp á 10 millj. króna. 

Veltufé frá rekstri var 151,6 millj. króna og veltufjárhlutfall er 1,02.

Heildareignir bæjarsjóðs námu um 1.209,7 millj. króna og heildareignir
sveitarfélagsins í samanteknum ársreikningi um 1.827,4 millj. króna í árslok
2006. Heildarskuldir bæjarsjóðs námu um 1.143,4 millj. króna og í samanteknum
ársreikningi um 1.489,9 millj. króna. 

Fjárfestingar ársins numu samtals 186,2 millj. króna árið 2006.  Stærstu
fjárfestingar ársins voru tengdar hafnarframkvæmdum.  Heildarskuldaaukning var
upp á 33,9 millj. króna. 
Álagningarhlutfall útsvars var 13,03%. Álagningahlutfall fasteignaskatts nam
0,44% á íbúðarhúsnæði og álagningarhlutfall á aðrar fasteignir nam 1,55%. 
Hægt verður að nálgast ásreikninginn á bæjarskrifstofunni Snæfellsási 2,
Hellissandi, sími 433-6900. Einnig á heimasíðu Snæfellsbæjar, www.snb.is.

Attachments

snfellsbr - arsreikningur 2006.pdf snfellsbr - lykiltolur 2006.pdf