- Niðurstöður yfirtökutilboðs Novator


Yfirtökutilboð Novator eignarhaldsfélags ehf. til hluthafa Actavis Group hf.
rann út kl. 16:00 miðvikudaginn 18. júlí 2007. Þau skilyrði sem Novator
eignarhaldsfélag ehf. setti fram í yfirtökutilboði sínu hafa verið uppfyllt og
er tilboðið hér með lýst óskilyrt af hálfu tilboðsgjafa. 

Að loknum tilboðsfresti hefur Novator tryggt sér hlutafé sem nemur kr.
1.895.316.722 að nafnverði eða 99,66% af heildarhlutafé Actavis Group hf., að
meðtöldum hlutum í eigu tilboðsgjafa og tengdra félaga sem og eigin hlutum
félagsins. 

Hluthafar sem samþykktu tilboðið fá greitt með reiðufé samkvæmt tilboðinu og
fer greiðsla fram miðvikudaginn 25. júlí 2007.