- Eimskip yfirtekur Versacold Income Fund


Eimskip Holdings Inc., dótturfélag Hf. Eimskipafélag Íslands og stjórn
Versacold Income Fund, tilkynna að öll skilyrði yfirtökutilboðs Eimskips í
Versacold Income Fund hafa verið uppfyllt. Öll tilskilin leyfi fyrir
yfirtökunni hafa verið veitt. Eimskip hefur fengið samþykki fyrir kaupum á um
það bil 54,1 milljón hlutum, sem samsvara  93% af útgefnum og útistandandi
hlutum eða 87% af útgefnum og útistandandi hlutum að öllum hlutum meðtöldum. 

Eimskip tilkynnir einnig að það hyggst eignast þá hluti sem það hefur fengið
samþykki fyrir þann 30. júlí með því að greiða fyrir þá þann 30. júlí eða innan
þriggja viðskiptadaga frá þeirri dagsetningu. 

Eimskip hyggst eignast allt hlutafé í Versacold Income Fund og er áætlað að því
ljúki í kringum 30. júlí. Hluthafar Versacold eiga ekki rétt á mánaðarlegum
arði eins og áður hefur komið fram vegna yfirtökutilboðs Eimskips. 

Versacold verður afskráð úr Kauphöllinni í Toronto eins fljótt og hægt er með
tilliti til þeirra laga sem gilda þar um. Einnig hyggst Versacold sækja um
leyfi til Fjármálaeftirlits Kanada um að losna undan reglum sem gilda um skráð
fyrirtæki um leið og Eimskip eignast allt hlutafé í félaginu. 

Eimskip vann með KingSett Capital að fjármögnun kaupanna, sem verður með veði í
fasteignum. 

Nánari upplýsingar má finna í tilkynningu félagsins frá 29. maí. 

Frekari upplýsingar veita:

Eimskipafélag

Baldur Gudnason
Forstjóri

Stefan A. Magnusson,
Framkvæmdastjóri fjármálasviðs

Dogg Hjaltalin
Fjárfestatengsl

HF. Eimskipafélag Íslands
Korngordum 2
104 Reykjavik
Iceland
Telephone: +354-525-7000
Fax: +354-525-7009
Website: www.eimskip.is

Versacold

Brent Sugden
Forstjóri

Roger Dall'Antonia
Framkvæmdastjóri sjóðastýringar og fjárfestatengsla

Versacold Income Fund
2115 Commissioner Street
Vancouver, British Columbia, V5L 1A6
Telephone: (604) 255-4656
Fax: (604) 255-4330
Website: www.versacold.com