2007 - Leiðrétting - Frétt send út 2007-08-30 10:57:41 CET


Leiðrétting. Lykiltölum hefur verið bætt við.

Framsetning árshlutareiknings Fagfjárfestasjóðsins CDO 1 er í samræmi við
reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af
Fjármálaeftirlitinu. 

Afkoma Fagfjárfestasjóðsins CDO 1 á fyrri hluta ársins 2007

•  Hagnaður varð af rekstri sjóðsins á tímabilinu að fjárhæð 60 m.kr. samkvæmt
   rekstrarreikningi, en Fagfjárfestasjóðurinn CDO1 er útgefandi
   skuldabréfaflokkanna CDO1 A1, CDO1 A2, CDO1 A3, CDO1 A4, CDO1 A5, CDO1 B1,
   CDO1 B2, CDO1 B3, CDO1 C1, CDO1 C2 og CDO1 C3 sem skráðir eru í OMX Norrænu
   kauphöllina Íslandi. 

•  Eigið fé sjóðsins nam í lok júní 992 m.kr. skv. efnahagsreikningi.

•  Árshlutareikningurinn var kannaður af KPMG hf. sem telur að við könnun þeirra
   hafi ekkert leitt í ljós sem bendir til annars en að árshlutareikningurinn
   gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu 1. janúar - 30. júní,
   efnahag í lok júní og breytingu á handbæru fé og hreinni eign sjóðsins, í
   samræmi við góða reikningsskilavenju. 

Eigið fé Rekstrarfélags Kaupþings banka hf., sem er rekstraraðili
Fagfjárfestasjóðsins CDO1, þann 30. júní 2007 nam 4.020 m.kr. samkvæmt
efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall sem reiknað er samkvæmt lögum um
fjármálafyrirtæki er 56,5% en samkvæmt lögunum má hlutfallið ekki vera lægra en
8,0%.  Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. er dótturfélag Kaupþings banka hf. og
hluti af samstæðureikningi bankans og dótturfélaga hans. 

Hægt verður að nálgast árshlutareikning félagsins frá og með deginum í dag í
móttöku Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. að Borgartúni 19, 105 Reykjavík. 

Nánari upplýsingar um árshlutareikning Fagfjárfestasjóðsins CDO 1 og
Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. veitir Ómar Kaldal Ágústsson,
framkvæmdastjóri Rekstrarfélags Kaupþings banka hf., og Jón Finnbogason,
sjóðsstjóri, í síma 444-6000.

Attachments

cdo 1 - lykiltolur.pdf arshlutreikningur 30-06-07 cdo1.pdf