- Afkoma fagfjárfestasjóðsins KFF Institutional Investor Fund á árinu 2007


Framsetning ársreiknings fagfjárfestasjóðsins KFF Institutional Investor Fund
er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem
settar eru af Fjármálaeftirlitinu. 

•  Hagnaður varð af rekstri sjóðsins á árinu 2007 að fjárhæð 0 m.kr. samkvæmt
   rekstrarreikningi, en KFF Institutional Investor Fund er útgefandi
   skuldabréfaflokkanna KFF24 og KFF44 sem skráðir eru í OMX Norrænu kauphöllina
   Íslandi. 

•  Eigið fé sjóðsins nam í lok árs 2007 1 m.kr. skv. efnahagsreikningi.

•  Ársreikningurinn var endurskoðaður af KPMG hf. sem telur að ársreikningurinn
   gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2007, efnahagi hans 31. desember
   2007 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á árinu, í samræmi við lög um
   ársreikninga. 

Eigið fé Rekstrarfélags Kaupþings banka hf., sem er rekstraraðili KFF
Institutional Investor Fund, þann 31. desember 2007 nam 4.862 m.kr. samkvæmt
efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall sem reiknað er samkvæmt lögum um
fjármálafyrirtæki er 58,6% en samkvæmt lögunum má hlutfallið ekki vera lægra en
8,0%. Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. er dótturfélag Kaupþings banka hf. og
hluti af samstæðureikningi bankans og dótturfélaga hans.
 
Hægt verður að nálgast ársreikning félagsins frá og með deginum í dag í móttöku
Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. að Borgartúni 19, 105 Reykjavík. 

Nánari upplýsingar um ársreikning KFF Institutional Investor Fund og
Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. veitir Ómar Kaldal Ágústsson,
framkvæmdastjóri rekstrarfélagsins, og Jón Finnbogason, sjóðsstjóri, í síma 444
6000.

Attachments

arsreikningur 31-12-07 kffiif.pdf