Uppgjör fyrri árshelmings 2008


Uppgjör Kögunar ehf. fyrir tímabilið janúar til júní 2008.

EBITDA Kögunar er 128 mkr. eða 18,6%. 

Stjórn Kögunar ehf. (KOGN) samþykkti á fundi þann 30. júlí 2008
árshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar - 30. júní 2008.
Rekstarrekningur tímabilsins tekur nú aðeins til Kögunar ehf en stjórnir
Kögunar og Teymis samþykktu skiptingu á Kögun ehf. þannig að dótturfélögin
Skýrr ehf., EJS ehf. og Eskill ehf. heyra nú beint undir samstæðu Teymis hf. 

Helstu atriði:
- Rekstrartekjur jukust um 6 mkr. eða 1% frá sama tímabili á fyrra ári. 
- EBITDA tímabilsins er 128 mkr. eða 18,6%.
- Framlegð af rekstri var 247 mkr. og í samræmi við áætlun félagsins.
- Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 514 mkr. og tap af rekstri eftir skatta af
þeim sökum  334 mkr. 

Um uppgjörið:
Rekstur Kögunar það sem af er árinu 2008 hefur gengið vel og afkoma í samræmi
við áætlanir. Þrátt fyrir að blikur séu á lofti í umhverfi stærstu
viðskiptavina þá hefur gengið vel að halda verkefnum gangandi og samningar um
ný verkefni skilað sér í hús. Þannig má sem dæmi nefna samninga við stjórnvöld
í Liechtenstein um útgáfukerfi vegna Schengen vegabréfsáritana og aukin
verkefni í tengslum við rafræna stjórnsýslu.  Stjórnendur Kögunar eru mjög
ánægðir með þann árangur sem náðst hefur til þessa en framundan eru óvissutímar
í ytra umhverfi félagsins og því erfitt að spá fyrir um hvernig reksturinn muni
þróast það sem eftir lifir árs. 

Skipting Kögunar
Stjórnir Kögunar ehf. og Teymis hf. ákváðu á fundi þann 3. apríl 2008 að leggja
fyrir stjórnar- og hluthafafundi félaganna tillögu þess efnis að skipta Kögun
ehf. þannig að Teymi yfirtæki alla eignarhluti Kögunar í dótturfélögunum Skýrr
ehf., EJS ehf. og Eskli ehf. og skyldi skiptingin miðast við 1. janúar 2008.
Tilgangurinn með þessari skiptingu var liður í endurskipulagningu Teymis sem
miðar að því að ná meiri skilvirkni og hagkvæmni hluthöfum til handa. Síðari
hluti skiptingar var staðfestur af stjórnum Teymis og Kögunar þann 30. júní
2008. Af þessum sökum er nú birtur árshlutareikningur pr. 30. júní 2008 sem
einungis tekur til reksturs Kögunar og á á hið sama við um samanburð við
rekstur janúar - júní 2007 en þar kemur sú starfsemi sem áður heyrði undir
samstæðu Kögunar fram sem afkoma af aflagðri starfsemi. 

Framtíðarhorfur 
Eins og fram hefur komið að ofan hefur samstæða Kögunar ehf. breyst umtalsvert
á síðustu tveimur árum og er Kögun ehf. nú sjálfstætt dótturfélag og hluti af 
samstæðu Teymi hf. sem er öflugasta fjarskipta- og upplýsingatæknifyrirtæki
landsins. Hlutverk Kögunar í þeirri samstæðu er að vaxa markvisst á
innanlandsmarkaði og styrkja enn frekar stöðu sína sem leiðandi fyrirtæki á
upplýsingatæknimarkaði. 


Nánari upplýsingar um uppgjörið veita:
Bjarni Birgisson, forstjóri			sími	898-2006	
Jóhann Þór Jónsson, fjármálastjóri		sími	861-7221

Attachments

frettatilkynning jan-jun 2008.pdf kogun hf - arshlutareikningur 30 06 08.pdf