Moody's lækkar lánshæfismatseinkunn Landsbankans í Caa1/E/NP


Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's Investors Service hefur í dag
lækkað lánshæfismatseinkunn Landsbankans, þ.e. fyrir
langtímaskuldbindingar í Caa1 úr A2 og einkunn fyrir fjárhagslegan
styrk í E úr C-. Einkunn vegna innlendra og erlendra
skammtímaskuldbindinga bankans var einnig lækkuð í 'Not-Prime'.
Horfur á öllum lánshæfiseinkunnum eru í athugun.

Nánari rökstuðning Moody's má finna í fréttatilkynningu sem fylgir
hér með.

Frekari upplýsingar veitir Brynjólfur Helgason, framkvæmdastjóri
Alþjóðasviðs í s. 820-6340.

Attachments

Moodys announcement - 8 Oct 2008.pdf