Breytingar á varastjórn


Stjórn Teymis hf. hefur borist tilkynning frá Soffíu Lárusdóttur, varamanni í
stjórn félagsins, þess efnis að hún hafi ákveðið að segja sig úr varastjórn
félagsins. 

Með vísan til 2. mgr. 64. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög telur stjórn
félagsins ekki ástæðu til að fram fari kosning varamanns í hans stað og hefur
því ákveðið að fresta kjöri til næsta aðalfundar.