- Sparisjóðurinn í Keflavík, BYR og SPRON undirrita viljayfirlýsingu um sameiningu


Stjórnir Sparisjóðsins í Keflavík, Byrs sparisjóðs og SPRON hafa undirritað
viljayfirlýsingu þess efnis að hefja undirbúning og vinnu sem miðar að því að
sameina sparisjóðina. Sparisjóðirnir hafa skuldbundið sig til að ræða ekki við
aðra aðila um samstarf eða sameiningu á meðan að viðræður standa yfir.  Stefnt
er að því að niðurstaða liggi fyrir eins fljótt og hægt er. 

Í viljayfirlýsingunni kemur fram að unnið verður eftir aðgerðaráætlun og er
stefnt að því að stofnfjáreigendur og hluthafar verði boðaðir til fundar í
febrúarmánuði til þess að fjalla um tillögu að samruna sem mun miðast við 1.
janúar 2009. 
 
Geirmundur Kristinsson sparisjóðsstjóri Sparisjóðsins í Keflavík:
“Sparisjóðurinn er jákvæður fyrir sameiningarviðræðunum. Þessir þrír
sparisjóðir eiga hvað mesta samleið og gangi sameiningin eftir verður til sterk
eining í sparisjóðafjölskyldunni öllum sparisjóðum til hagsbóta. Á þessum
erfiðu tímum sem framundan eru, þá mun sameinaður sterkur sparisjóður mynda
tryggan rekstrargrundvöll og skapa traust viðskiptavina og annarra
hagsmunaaðila. Sameinaður sparisjóður mun áfram þjónusta sitt starfssvæði á
öflugan hátt og í góðum tengslum við samfélagið. Sameining sjóðanna mun leggja
grunninn að framtíð sparisjóða á Íslandi.” 

“Ragnar Z. Guðjónsson sparisjóðsstjóri Byrs sparisjóðs:
“Stjórn Byrs hefur ákveðið að fara í þessar viðræður þrátt fyrir sterka stöðu
Byrs með hagsmuni viðskiptavina og annara hagsmunaaðila að leiðarljósi. Með
viðræðunum erum við að kanna hvort grundvöllur sé fyrir sameiningu
fyrirtækjanna. Náist niðurstaða sem er öllum aðilum að skapi, er lagður grunnur
að sterku fyrirtæki sem er vel í stakk búið að takast á við framtíðina.
Sameinaður sparisjóður á einnig mikil sóknarfæri þegar markaðir komast aftur í
eðlilegt horf. Það er því áhugavert fyrir okkur að skoða þennan möguleika ofan
í kjölinn. Við förum því  þessa vinnu af krafti og munum kanna þennan kost til
hlítar eins hratt og auðið er.” 

Guðmundur Hauksson forstjóri SPRON:
“Markmið sameiningarinnar er að styrkja sparisjóðina í því erfiða
efnahagsumhverfi sem framundan er og stuðla að aukinni hagræðingu í íslensku
fjármálakerfi. Með samrunanum verður til stærri og öflugri eining, sem er vel í
stakk búin að til takast á við ný og krefjandi framtíðarverkefni.
Sparisjóðirnir hafa allir þrír lagt ríka áherslu á persónulega og góða þjónustu
til viðskiptavina sinna og með stærri og öflugri einingu verður hægt að efla
þjónustu þeirra enn frekar. “ 

Frekari upplýsingar veitir: 
Geirmundur Kristinsson sparisjóðsstjóri SPKEF í síma 421 6605
Ragnar Z. Guðjónsson sparisjóðsstjóri Byrs í síma 575 4000
Guðmundur Hauksson forstjóri SPRON síma 550 1213