- Vinnslustöðin hf. birtir ekki 9. mánaða uppgjör félagsins


Þann 14. nóvember var Vinnslustöðin hf. afskráð af hlutabréfamarkaði OMX og
þarf því ekki lengur að birta uppgjör sín á þriggja mánaða fresti samkvæmt
reglum kauphallarinnar fyrir útgefendur fjármálagerninga, útgefnum þann 1. júlí
2008.  Félagið er hinsvegar skráð á skuldabréfamarkaði kauphallarinnar OMX og
ber því að birta uppgjör á sex mánaða fresti samkvæmt grein nr. 4.3.1. í
reglunum.  Einnig er vísað til skyldu til birtingar árshlutareiknings fyrstu
sex mánaða rekstrarársins í grein nr. 58 í lögum nr. 108/2007 um
verðbréfaviðskipti. Í ljósi þessara laga og reglna hefur verið ákveðið að birta
ekki níu mánaða uppgjör félagsins eins og áður hefur verið tilkynnt um.  Næsta
birting á uppgjöri verður því á ársuppgjöri félagsins fyrir árið 2008. 



Frekari upplýsingar:
Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri
í símum 488 8004 og 897 9607