CORRECTION: Áfram unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu Sparisjóðabanka Íslands hf.


Í framhaldi af þeim viðræðum sem hafa átt sér stað á milli Sparisjóðabanka
Íslands hf. og stærstu lánveitenda bankans um fjárhagslega endurskipulagningu
hans hefur verið skipaður vinnuhópur með fulltrúum Seðlabanka Íslands, erlendra
lánveitenda og bankans sjálfs. Vinnuhópurinn hefur frá því snemma í febrúar
unnið að tillögu um fjárhagslega endurskipulagningu og framtíðarskipulag
bankans. Seðlabankinn hefur veitt bankanum frest á veðkalli fram til 28. mars
nk. til að ljúka megi þessari vinnu og er unnið að samþykki erlendra
lánveitenda bankans fyrir jafn löngum fresti. Þá hefur Fjármálaeftirlitið veitt
bankanum jafn langan frest til að koma eiginfjárgrunni sínum í horf sem
uppfyllir skilyrði laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.