Sparisjóðabanki Íslands hf. segir upp starfsfólki - Bankastjóri og aðstoðarbankastjóri láta af störfum - Nýr bankastjóri ráðinn


Sparisjóðabanki Íslands hf. hefur frá því að bankinn fékk heimild til
greiðslustöðvunar þann 23. mars sl. sagt upp 37 starfsmönnum. Hjá bankanum munu
starfa áfram 35 starfsmenn. 

Bankastjóri Sparisjóðabanka Íslands hf., Agnar Hansson, lét af störfum í
vikunni. Sömuleiðis hefur aðstoðarbankastjóri bankans, Ólafur Ottósson, látið
af störfum. 

Sveinn Andri Sveinsson, áður framkvæmdastjóri fjármála- og upplýsingatæknisviðs
bankans, hefur verið ráðinn í starf bankastjóra.