- Ársreikningur 2008


Í dag 22. apríl 2009 var ársreikningur Stykkishólmbæjar 2008 tekinn til fyrri
umræðu. Eins og sveitarstjórnarlög kveða á um, skal fjalla um ársreikninginn á
tveimur fundum í sveitarstjórn. Seinni umræða verður 20. maí n.k. 

Í reglugerð nr. 944/2000, um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga, sem tók
gildi 1. janúar 2001, eru ákvæði um reikningsskil sveitarfélaga. Þar er gert
ráð fyrir að sveitarfélög hagi bókhaldi sínu og reikningsskilum í samræmi við
ákvæði laga um bókhald nr. 145/1994 og ársreikninga nr. 144/1994 að svo miklu
leyti sem sveitarstjórnarlög mæla ekki fyrir á annan veg eða reglugerðir settar
á grundvelli þeirra.  Ársreikningar sveitarfélaga skulu byggðir á almennum
reikningsskilaaðferðum. 

Ársreikningur Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2008 byggir á sömu
reikningsskilaaðferðum og árið áður í samræmi við framangreind lög og reglur. 

Helstu lykiltölur: Sjá viðhengi.

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 719,7 millj. kr. samkvæmt
samanteknum ársreikningi fyrir A- bæjarsjóð og B- hluta stofnanir og fyrirtæki,
en þar af námu rekstrartekjur A-hluta þ.e. bæjarsjóðs 670,5 millj. kr. 

Rekstrargjöld A og B hluta námu 849,3 millj. Þar af námu rekstrargjöld A-hluta
bæjarsjóðs 721,8 millj. að meðtöldum hækkunum vegna lífeyrisskuldbindinga
starfsfólks að upphæð 26,8 m.kr. Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs var neikvæð um
51,3 millj.  samkvæmt ársreikningi  en neikvæð um 129,6 millj. kr. í 
samanteknum ársreikningi A og B hluta. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2008
nam, eftir að lífeyrisskuldbindingar höfðu verið dregnar frá, 429,3 millj. kr.
samkvæmt efnahagsreikningi, en þar af nam eigið fé bæjarsjóðs 689,0 millj. kr. 


Rekstarafkoma samantekins ársreiknings A og B hluta er
neikvæð um 129,6 millj. kr. Meginátæður eru fyrir þessu eru:

.  Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs A-hluti var neikvæð um 51,3 millj. Helstu
   ástæður þessarar rekstrarniðurstöðu má rekja til mikillar hækkunar
   fjármagnskostnaðar vegna hækkunar á verðtryggðum lánum. Hækkun lánanna var
   gjaldfærð í rekstrarreikningi m.v. stöðu þeirra í lok ársins. 

.  Tap af Fasteignum Stykkishólms (FSH ehf) upp á 10,9 milljónir króna að
   stærstum hluta vegna hækkunar á verðtryggingum lána. 	 

.  Hallarekstur hafnarsjóðs var 11,4 millj.kr. og stafar að stærstum hluta
   vegna hækkunar á verðtryggingum lána. 
 	
.  Hallarekstur Fráveitu er 42,8 millj.kr. og skýrir aukin fjármagnskostnaður
   vegna aukinnar verðbólgu þennan halla að mestu leiti. 

.  Hallrekstur Framkvæmdasjóðs er 13,3 milljónir kr. og stafar að stærstum
   hluta vegna hækkunar á verðtryggingum lána.
	 
Það sem er jákvætt við rekstur bæjarsjóðs A og B hluta er að handbært fé frá
rekstri er 93,2 millj.kr., ef ekki yrði farið í fjárfestingar og engin ný lán
tekin, þá tæki það ekki nema 9,9 ár að greiða upp allar skuldir bæjarsjóðs
Stykkishólmsbæjar. 

Fjárfestingar voru 71,9 milljónir króna og vegur fjárfesting í gatnagerð
þyngst, auk þess voru fjárfestingar í íþróttamannvirkjum og lausamunum.   
 
Álagningarhlutfall útsvars var 13,03%. Álagningarhlutfall fasteignaskatts var
0,43% á íbúðarhúsnæði. 

Álagningarhlutfall á aðrar fasteignir var 1,65%. Ársreikningurinn í heild sinni
verður birtur  á heimasíðu Stykkishólmbæjar. 


Nánari upplýsingar veitir: Þór Örn Jónsson, bæjarritari,  í síma 433-8100

Attachments

stykkisholmsbaer 12 2008.pdf frettatilkynning og lykiltolur 2008.pdf