Skipan slitastjórnar fyrir Sparisjóðabanka Íslands hf. - Nefndarmaður í skilanefnd bankans lætur af störfum


Slitastjórn fyrir Sparisjóðabanka Íslands hf. var skipuð af Héraðsdómi
Reykjavíkur þann 20.maí sl. Í slitastjórninni sitja Andri Árnason hrl.,
Berglind Svavarsdóttir hrl. og Tómas Jónsson hrl., sem jafnframt er
aðstoðarmaður í greiðslustöðvun. Tómas tekur sjálfkrafa sæti í slitastjórn
samkvæmt ákvæðum laga um fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 44/2009. 

Áslaug Björgvinsdóttir hefur látið af störfum í skilanefnd Sparisjóðabankans.
Skilanefndina skipa því eftirleiðis eftirfarandi þrír einstaklingar: Erling
Tómasson löggiltur endurskoðandi og formaður nefndarinnar, Hjördís Edda
Harðardóttir hrl. og Jón Ármann Guðjónsson hdl.