Yfirlýsing frá Exista í kjölfar ákvörðunar Kauphallarinnar


Exista undrast ákvörðun Kauphallarinnar, um opinbera áminningu og töku
skuldabréfa félagsins úr viðskiptum. Frá hruni íslenska fjármálakerfisins hefur
Exista átt í samningaviðræðum við lánveitendur sína um endurskipulagningu
félagsins. Samhliða hefur verið leitast við að birta allar upplýsingar sem
talist geta verðmótandi fyrir skuldabréf þess. Birtar hafa verið upplýsingar um
óvissa stöðu félagsins eins og kostur er. Þess hefur sérstaklega verið gætt að
birta ekki ótímabærar áætlanir um vænta niðurstöðu í viðræðum félagsins við
lánveitendur sína. Það er ekki markmið upplýsingaskyldu skráðra félaga að senda
óskýrar upplýsingar til fjárfesta. 

Þess má einnig geta að engin viðskipti hafa verið með skuldabréf Exista
síðastliðna 12 mánuði sem bendir til þess að fjárfestar hafi verið fyllilega
upplýstir um stöðu félagsins. 

Exista telur sig hafa fylgt bæði lögum og reglum Kauphallarinnar og sýnt ábyrgð
í allri upplýsingagjöf til markaðarins. Exista er því ósammála ákvörðun
Kauphallarinnar.