Nauðasamningur Atorku Group hf. samþykktur


Kröfuhafar Atorku Group hf. samþykktu á fundi í dag frumvarp til nauðasamnings
fyrir félagið með yfirgnæfandi meirihluta eða yfir 90% atkvæða.  Félagið mun í
kjölfarið óska eftir staðfestingu Héraðsdóms Reykjaness. 
	
Nánari upplýsingar veitir Arnar Már Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs
í síma 540 6200.