Nýr sparisjóðsstjóri Byrs


Stjórn Byrs hefur ákveðið að framlengja ráðningu Jóns Finnbogasonar sem
sparisjóðsstjóra Byrs.  Jón hóf störf sem forstöðumaður lögfræðisviðs Byrs í
ársbyrjun 2009. Ragnar Z. Guðjónsson hefur sagt upp störfum hjá Byr.  Stjórn
gerði ekki sérstakan starfslokasamning við Ragnar Z. Guðjónsson. 
 
Rétt er að ítreka að þessi breyting hefur engin áhrif á starfsemi
sparisjóðsins, starfsemi og þjónusta Byrs mun verða óbreytt.