Atorka Group boðar til hluthafafundar 22. janúar 2010


Stjórn Atorku Group hf. boðar til hluthafafundar félagsins föstudaginn 22.
janúar 2010 kl. 10:00 á Grand Hótel.

Á dagskrá fundarins er einungis eitt mál, eða tillaga stjórnar Atorku Group hf.
um að núverandi hlutafé í félaginu verði fært niður að fullu, samhliða því að
samþykkt verði að hækka hlutafé að nýju og að kröfuhafar félagsins skrái sig
fyrir nýju hlutafé í samræmi við nauðasamning Atorku Group hf. við kröfuhafa,
samþykktan á fundi kröfuhafa 10. desember 2009 og staðfestan af Héraðsdómi
Reykjaness 7. janúar 2010. 

Dagskrá fundarins og tillaga stjórnar félagsins í samræmi við framangreint munu
liggja frammi til sýnis fyrir hluthafa á skrifstofu félagsins frá og með 15.
janúar 2010. 

Stjórn Atorku Group hf.