Kröfuhafar taka við rekstri Atorku Group hf.


Hluthafafundur Atorku Group hf. var haldinn á Hótel Hilton Reykjavík Nordica,
fimmtudaginn 4. febrúar 2010.

Á fundinum voru kjörnir í stjórn fulltrúar kröfuhafa en samþykkt var á
hluthafafundi þann 22. janúar 2010 að færa niður hlutafé félagsins og með því
efna nauðasamning félagsins sem kröfuhafar samþykktu þann 10. desember 2010. Að
auki var samþykkt að samþykktum félagsins yrði breytt í þá veru að ekki verði
kjörnir varamenn í stjórn. 

Nýja stjórn Atorku Group hf. skipa Þórður Ólafur Þórðarson stjórnarformaður,
Jakob Bjarnason, Einar Páll Tamini, Halldór Bjarkar Lúðvígsson og Gunnar V.
Engilbertsson. 

Með þessu lýkur nauðasamningsferli félagsins sem staðið hefur frá síðastliðnu
vori sem fram fór í samvinnu fráfarandi stjórnar Atorku Group og kröfuhafa
félagsins.  Helstu verkefni nýrrar stjórnar á komandi mánuðum verður að leita
leiða til þess að hámarka virði eignasafns Atorku Group og ráðstafa andvirði
eignasafnsins til hluthafa félagsins í samræmi við ákvæði nauðasamnings
félagsins. 

Stærstu hluhafar Atorku Group hf. í kjölfar nauðasamningsins eru eftirtaldir:
NBI hf.            44,20%
Íslandsbanki hf.   15,25%
Arion Banki hf.     5,00%
Glitnir Banki hf.   4,86%
Drómi hf.           4,55%

Núverandi eignarhlutföll hluthafa munu taka breytingum til lækkunar ef í ljós
kemur að öllum kröfum á hendur félaginu hafi ekki verið lýst í tengslum við
nauðasamningsferli félagins.  Þá ríkir enn óvissa um gildi krafna á hendur
félaginu sem byggja á afleiðusamningum þess, en úrlausn þess ágreiningsefnis
mun verða vísað til dómstóla. Eigendur hinna umdeildu krafna munu fá úthlutað
hlutafé í Atorku Group hf. í samræmi við nauðasamning félagsins er
ágreiningsmálin hafa verið leidd til lykta. 


F.h. hönd Atorku Group hf.
Þórður Ólafur Þórðarson, stjórnarformaður.