Skipun slitastjórnar


Þann 9. apríl 2010 féllst Héraðsdómur Reykjavíkur á beiðni bráðabirgðastjórnar
VBS fjárfestingarbanka hf. um skipun slitastjórnar. Samkvæmt 4. mgr. 101. gr.
laga nr. 161/2002, sbr. 5. gr. laga nr. 44/2009, eru hæstaréttarlögmennirnir
Hróbjartur Jónatansson og Þórey S. Þórðardóttir, og Friðbjörn Björnsson,
löggiltur endurskoðandi, skipuð til starfa í slitastjórn VBS fjárfestingabanka
hf.