Landsbréf kaupa sjóði Landsvaka


Í dag samþykkti Fjármálaeftirlitið sölu og yfirfærslu allra sjóða frá rekstrarfélaginu Landsvaka hf. til rekstrarfélagsins Landsbréfa hf. Bæði félögin eru dótturfélög Landsbankans hf. og í fullri eigu bankans. Við yfirfærsluna taka Landsbréf við 21 verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóðum. Sautján þeirra eru í rekstri en fjórir í slitaferli. Landsbréf taka yfir rekstur sjóðanna um næstu mánaðamót.

Undirbúningur að flutningi sjóða Landsvaka yfir í nýtt rekstarfélag hefur verið unninn í nánu samstarfi við Fjármálaeftirlitið. Markmiðið með flutningnum er að verja hagsmuni núverandi hlutdeildarskírteinishafa gegn afleiðingum sem tengjast hruni á fjármálamarkaði þar sem enn eru fyrir hendi óvissuþættir sem ekki þykir eðlilegt að hlutdeildarskírteinishafar þurfi að búa við.

Við þessa breytingu er lögð rík áhersla á að hagsmunir eigenda hlutdeildarskírteina í sjóðum séu tryggðir. Starfsemi Landsbréfa verður með sama hætti og starfsemi Landsvaka. Þannig mun starfsfólk Landsvaka hefja störf hjá Landsbréfum samhliða yfirfærslu sjóðanna. Engar breytingar verða á starfsemi sjóðanna sjálfra. Reglur einstakra sjóða verða óbreyttar að öðru leyti en því að nýr rekstraraðili tekur við rekstri þeirra Enginn kostnaður fellur á hlutdeildarskírteinishafa við þessa breytingu og markaðsvirði hlutdeildarskírteina helst óbreytt.

Sala sjóðanna er gerð að undangengnu verðmati tveggja óháðra aðila. Söluverðið er 530 milljónir króna. Söluandvirði sjóðanna bætist við eigið fé Landsvaka sem verður eftir í félaginu til þess að standa skil á hugsanlegum kröfum. Í kjölfar yfirfærslunnar verður rekstrarleyfi Landsvaka skilað inn til Fjármálaeftirlitsins en félagið verður áfram dótturfélag Landsbankans.

Framkvæmdastjóri Landsbréfa hf. verður Ari Skúlason..“