Ársuppgjör Landsvaka fyrir árið 2011


Stjórn Landsvaka hf., sem rekur verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóði Landsbankans, hefur staðfest ársreikning félagsins fyrir árið 2011.  Í lok ársins 2011 annaðist Landsvaki hf. rekstur 22 sjóða um sameiginlega fjárfestingu en á árinu voru stofnaðir 2 nýir sjóðir og 2 sjóðir voru sameinaðir í einn.  Í árslok nam heildarstærð sjóða í rekstri Landsvaka 61 milljarði króna samanborið við 53 milljarða í árslok 2010.

Lykiltölur í þúsundum króna: Sjá viðhengi.

  • Ársreikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur ársreikning rekstrarfélagsins og B-hluta sem inniheldur ársreikning verðbréfa-, fjárfestinga- og fagfjárfestasjóða.  Þessi framsetning á reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar voru af Fjármálaeftirlitinu. 
     
  • Ársreikningurinn hefur verið endurskoðaður af KPMG sem telur að reikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna á árinu 2011, efnahag þess 31. desember 2011 og breytingu á handbæru fé og hreinni eign sjóðanna á árinu 2011, í samræmi við lög og settar reikningsskilareglur.

Skuldabréfa- og hlutabréfamarkaðir hafa enn ekki náð sér að fullu á strik eftir efnahagsáföll síðustu ára.  Það setur mark sitt á starfsemi félagsins að enn vantar mikið upp á skilvirkni og dýpt á mörkuðum.  Erfið staða á mörkuðum hefur veruleg áhrif á rekstur sjóða Landsvaka auk mikillar óvissu í efnahagsmálum heimsins um þessar mundir.

Eftir að heildareignir í stýringu minnkuðu verulega í kjölfar falls bankanna í byrjun október 2008 hafa aðstæður breyst til batnaðar. Þróunin á árinu 2011 var sjóðum Landsvaka tiltölulega hagstæð og jukust eignir i stýringu um rúm14%.  Stærð skuldabréfasjóða jókst þannig um 14% og stærð innlendra hlutabréfasjóða jókst um 143%.  Markaðshlutdeild félagsins jókst á árinu og ávöxtun sjóða félagsins var einnig vel ásættanleg miðað við hefðbundin viðmið, félagið átti til dæmis þann verðbréfasjóð sem skilaði hæstri ávöxtun á árinu, Sparibréf verðtryggð.

Hagnaður varð af rekstri félagsins á árinu að fjárhæð 207 milljónir króna samkvæmt rekstrarreikningi félagsins.  Eigið fé Landsvaka hf. í lok ársins nam 517 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi.  Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 81,2% en þetta hlutfall má ekki vera lægra en 8% samkvæmt lögum.

 

Nánari upplýsingar um ársreikning Landsvaka hf. veitir Ari Skúlason, framkvæmdastjóri Landsvaka í síma 410 7406.

 

 


Attachments