Árshlutareikningur Sandgerðisbæjar 30. júní 2012

Rekstraráætlanir standast en verðbætur aukast


Meðfylgjandi er árshlutareikningur Sandgerðisbæjar 30. júní 2012.

Árshlutareikningur Sandgerðisbæjar fyrir fyrstu sex mánuði ársins  liggur fyrir.  Reikningurinn sýnir að rekstraráætlanir ganga eftir. Vegna verðbólgu eru verðbætur lána og skuldbindinga umfram áætlun en í þeim hafði verið ráð fyrir 4% verðbólgu allt árið 2012. Fyrstu sex mánuði ársins eru verðlagshækkanir hins vegar orðnar 3,5%.  

 

Undanfarin ár hefur verið unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu sveitarfélagsins og miðar hægt og bítandi í rétta átt. Mörkuð hefur verið stefna um að innan 10 ára verði heildarskuldir og skuldbindingar A og B hluta 150% eða lægri af reglulegum tekjum, og að janvægi náist í rekstri sveitarfélagsins í síðasta lagi árið 2017. 

 

 

 


Attachments

Árshlutareikningur 30 06 2012 Sandgerði.pdf