Ársreikningur Stykkishólmsbæjar 2012


Í dag 18. apríl 2012 var ársreikningur Stykkishólmbæjar 2012 tekinn til fyrri umræðu. Eins og sveitarstjórnarlög kveða á um, skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn. Seinni umræða verður 15. maí n.k.

Í reglugerð nr. 944/2000, um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga, sem tók gildi 1. janúar 2001, eru ákvæði um reikningsskil sveitarfélaga. Þar er gert ráð fyrir að sveitarfélög hagi bókhaldi sínu og reikningsskilum í samræmi við ákvæði laga um bókhald nr. 145/1994 og ársreikninga nr. 144/1994 að svo miklu leyti sem sveitarstjórnarlög mæla ekki fyrir á annan veg eða reglugerðir settar á grundvelli þeirra.  Ársreikningar sveitarfélaga skulu byggðir á almennum reikningsskilaaðferðum.

Ársreikningur Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2012 byggir á sömu reikningsskilaaðferðum og árið áður í samræmi við framangreind lög og reglur.

 

Helstu lykiltölur: Sjá viðhengi.

 

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 916,1 millj. kr. samkvæmt samanteknum ársreikningi fyrir A- bæjarsjóð og B- hluta stofnanir og fyrirtæki, en þar af námu rekstrartekjur A-hluta þ.e. bæjarsjóðs 845,8 millj. kr.

Rekstrargjöld A og B hluta námu 764,2 millj. Þar af námu rekstrargjöld A-hluta bæjarsjóðs 735,3 millj. að meðtöldum hækkunum vegna lífeyrisskuldbindinga starfsfólks. Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs var jákvæð um 11,0 millj.  samkvæmt ársreikningi  en jákvæð um 4,5 millj. kr. í  samanteknum ársreikningi A og B hluta. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2012 nam, eftir að lífeyrisskuldbindingar höfðu verið dregnar frá, 863,9 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi, en þar af nam eigið fé bæjarsjóðs 1.051,8 millj. kr.

Rekstarafkoma samantekins ársreiknings A og B hluta er jákvæð um 4,5 millj. kr. miðað við 47,7 millj. kr. tap á árinu 2011. Meginátæður eru fyrir þessu eru:

    

  1. Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs A-hluti var jákvæð um 11,0  millj. 2012 miðað við 35,1 millj. kr. tap á árinu 2011.  Helstu ástæður þessarar rekstrarniðurstöðu má rekja til 17,2 milljónum kr. hækkun á útsvari miðað við fjárhagsáætlun. Einnig urðu fjármagnsgjöld lægri, þar sem verðbólga reyndist minni en áætlun gerði ráð fyrir. Einnig er jákvætt að tekjur eru að aukast hjá Stykkishólmsbæ A-hluta eða úr 764,7 millj. kr.  árið 2011 í 845,8 milljónir króna árið 2012.

 

  1.  Í öðru lagi er jákvætt að Hafnarsjóður var rekinn með u.þ.b. 3,1 millj. kr. hagnaði miðað við 1,0 milljón kr. hagnað árinu á undan.

 

  1. Í þriðja lagi skilar Fráveita 0,7 milljón kr. hagnaði miðað við 4,2 milljón kr. tapi á árinu 2011.

 

  1. Síðast en ekki síst þá hefur skuldahlutfall miðað við tekjur batnað milli ára og er komið niður fyrir 150% af skatttekjum.

 

Helstu fjárfestingarhreyfingar eru annars vegar sala á Ásklif 4a að upphæð 26,1 milljónir króna, hins vegar fjárfestingar að upphæð 64,4 milljónir króna og vegur fjárfesting í slökkvibíl að upphæð 13,6 milljónir, gatnagerð 13,3 milljónir, uppbygging kirkjugarðs 12,2 milljónir og  nýtt hlutafé í Jeratúni að upphæð 7,6 milljónir þyngst.

Álagningarhlutfall útsvars var 14,48%. Álagningarhlutfall fasteignaskatts var 0,43% á íbúðarhúsnæði.

Álagningarhlutfall á aðrar fasteignir var 1,65%. Ársreikningurinn í heild sinni verður birtur  á heimasíðu Stykkishólmbæjar.

 

Nánari upplýsingar veitir: Þór Örn Jónsson, bæjarritari,  í síma 433-8100

 

 


Attachments

Sth bæjarsj-samstæða B 12-2.pdf Sth bæjarsj-samstæða 12-2.pdf Fréttatilkynning 2012 með lykiltölum.pdf FSH 2012-2.pdf