Afkoma Íslandssjóða hf. fyrstu 6 mánuði ársins 2013


Stjórn Íslandssjóða hf., sem rekur verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði, hefur staðfest árshlutareikning félagsins fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2013.

 

Afkoma Íslandssjóða hf. fyrstu 6 mánuði ársins 2013

  • Árshlutareikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur árshlutareikning Íslandssjóða og B-hluta sem inniheldur árshlutareikning verðbréfa- og fjárfestingarsjóða. Þessi framsetning á reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu.
     
  • Hagnaður rekstrarfélagsins eftir skatta fyrstu 6 mánuði ársins 2013 er 146 m.kr. samanborið við 127 m.kr. fyrir sama tímabil árið áður.
     
  • Rekstrargjöld námu 479 m.kr. samanborið við 409 m.kr. fyrir sama tímabil árið áður og hækkuðu um 17,7%.
     
  • Hreinar rekstrartekjur námu 662 m.kr. samanborið við 568 m.kr. fyrir sama tímabil árið áður, jukust um 16,5%.
     
  • Eigið fé 30. júní 2013 nam 1.878 m.kr. en var 1.925 m.kr. í ársbyrjun.
     
  • Heildareignir félagsins 30. júní 2013 námu 2.643 m.kr. en voru 3.006 m.kr. í árslok 2012.
     
  • Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 143,4% í lok júní, en þetta hlutfall má ekki vera lægra en 8,0%.
  • Í lok júní 2013 voru 19 sjóðir í rekstri hjá félaginu og nam hrein eign þeirra 113.755 milljónum króna samanborið við 114.145 m.kr. í lok árs 2012. Þar af eru 15 verðbréfasjóðir með hreina eign að upphæð 99.017 milljónir króna og 4 fjárfestingarsjóðir með hreina eign að upphæð 14.738 milljónir króna. Einn sjóður sem skráður er í Lúxemborg er í stýringu félagsins.
     
  • Stjórn samþykkti að sameina Lengri skuldabréfasjóðinn, sem yfirtekinn var frá rekstrarfélagi Byrs, við Ríkisskuldabréf - Sjóð 5. Gert er ráð fyrir að sameiningu sjóðanna verði lokið í septembermánuði.
     
  • Árshlutareikningurinn hefur verið kannaður af Deloitte hf. en við könnun kom ekkert fram sem bendir til annars en að reikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna á fyrstu 6 mánuðum ársins 2013.
     
  • Á fyrri hluta ársins störfuðu 17 starfsmenn hjá Íslandssjóðum. Framkvæmdastjóri félagsins er Haraldur Örn Ólafsson.

 

 

Lykiltölur í m.kr.: Sjá fréttatilkynningu í viðhengi.

 

 

 

Árshlutareikningur félagsins munu liggja frammi hjá félaginu í húsnæði Íslandsbanka, Kirkjusandi, 4. hæð og á www.islandssjodir.is frá og með 3. september 2013.

 

Nánari upplýsingar um árshlutareikning Íslandssjóða hf. veitir Haraldur Örn Ólafsson, fram­kvæmda­stjóri félagsins í síma 440-4593

 


Attachments

Árshlutareikningur 30.06.13.pdf Fréttatilkynning.pdf