HB Grandi hf. – Aðalfundur 21. mars 2014


Aðalfundur HB Granda hf. verður haldinn föstudaginn 21. mars 2014 í matsal félagsins að Norðurgarði 1, 101 Reykjavík og hefst hann klukkan 17:00.

 

Á DAGSKRÁ FUNDARINS VERÐA:

 

  1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 18. gr. samþykkta félagsins.
  2. Tillögur að nýjum samþykktum fyrir félagið. Hinar nýju samþykktir byggja að mestu á núgildandi samþykktum en breytast til samræmis kröfum sem gerðar eru til félaga sem skráð eru á skipulegum verðbréfamarkaði. Tekin eru upp ákvæði um rafræn samskipti við hluthafa, rafræna hluthafafundi, boðunarfrestir hluthafafunda lengdir, ákvæði um kynjahlutföll við stjórnarkjör og fellt niður kjör varamanns í stjórn. Tillögurnar liggja frammi á skrifstofu félagsins og á heimasíðu þess og þar geta hluthafar nálgast þær.
  3. Tillaga um heimild til félagsstjórnar um kaup á eigin hlutum skv. 55. gr. hlutafélagalaga.
  4. Önnur mál.

Réttur hluthafa til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar og kosning:

Hver hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi ef hann gerir um það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar með það löngum fyrirvara að unnt sé að taka málið á dagskrá fundarins sem lögð verður fram tveimur vikum fyrir fundinn. Þannig skulu óskir hluthafa liggja fyrir eigi síðar en kl. 17:00 föstudaginn 7. mars 2014. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu félagsins www.hbgrandi.is.

 

Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé.  Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar.

 

Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað.

 

Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn, geta:

a) veitt öðrum skriflegt umboð

b) greitt atkvæði skriflega

 

Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á að kynna sér á heimasíðu félagsins hvernig þeir skuli bera sig að.  Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu og form skjala og hvernig þeim skuli skilað til félagsins.

 

Aðrar upplýsingar

 

Endanleg dagskrá og öll skjöl sem lögð verða fyrir aðalfundinn, þ.m.t. ársreikningur félagsins, nýjar samþykktir og tillögur, eru hluthöfum tiltæk á heimasíðu félagsins frá og með 7. mars 2014, kl. 17:00 og á skrifstofu félagsins frá sama tíma á venjulegum skrifstofutíma.

 

Hluthöfum er bent á að skv. 63. gr. hlutafélagalaga skal tilkynna skriflega, minnst fimm dögum fyrir hluthafafund, um framboð til stjórnar. Tilkynnt verður um framkomin framboð tveimur dögum fyrir aðalfundinn.

 

Allar nánari upplýsingar um aðalfundinn er að finna á vefsíðu félagsins, www.hbgrandi.is.

 

 

Stjórn HB Granda hf.