Hugað að endurnýjun ísfisktogara


HB Grandi hf. og tyrkneska skipasmíðastöðin Celiktrans Denis Insaat Ltd. hafa komist að samkomulagi um að Celiktrans fullhanni og smíði líkan af ískfisktogara til skoðunar í tanki. Alfreð Tulinius og Bárður Hafsteinsson skipaverkfræðingar hjá Nautic ehf. munu annast hönnunina.

Áætlað er að hönnunin og prófun líkans verði að fullu lokið í júní næstkomandi. Í framhaldi af því ræðst hvort samkomulag næst á milli aðila um smíði þriggja ísfisktogara. Náist samkomulag má búast við að fyrsti togarinn verði afhentur um mitt árið 2016.

Þegar liggur fyrir gróf útlitshönnun af togurunum sem eru um 55 metra langir og 13,5 metra breiðir.

Skipasmíðastöðin Ceiliktrans er nú með uppsjávarskip í smíðum fyrir HB Granda.

         Nánari upplýsingar gefur Vilhjálmur Vilhjálmsson í síma 550-1000