HB Grandi hf – Niðurstöður aðalfundar haldinn 21. mars 2014


Aðalfundur samþykkti samhljóða bæði ársreikning félagsins og skýrslu stjórnar

Fundurinn samþykkti eftirfarandi tillögur:

Tillaga um greiðslu arðs

Aðalfundur HB Granda hf. haldinn 21. mars 2014 samþykkir að greidd verði 1,50 kr. á hlut í arð vegna ársins 2013, alls að fjárhæð     2.720.488.085 kr. Arðurinn verður greiddur 25. apríl 2014. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 21. mars 2014 og arðleysisdagur því 24. mars 2014.

Arðsréttindadagur er 26. mars 2014 (arður greiðist þeim sem skráðir eru í hlutaskrá að loknu uppgjöri verðbréfaskráningar Íslands fyrir kl. 12:00 þann 26. mars 2014)

Tillaga félagsstjórnar að nýjum samþykktum
Sjá viðhengi – samþykkt með öllum atkvæðum sem farið var með á fundinum

Tillaga félagsstjórnar að starfskjarastefnu
Sjá viðhengi – samþykkt samhljóða

Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna
Þóknun næsta árs til stjórnarmanna verði 150.000 kr. á mánuði og formaður fái tvöfaldan hlut.

Kjör stjórnar
Sjálfkjörið var í stjórn félagsins

Kristján Loftsson,Halldór Teitsson, Hanna Ásgeirsdóttir,Rannveig Rist og Þórður Sverrisson

Kosning endurskoðanda
Endurskoðunarfélag: KPMG ehf.

Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum
Aðalfundur veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi skal miða við síðasta skráða dagslokagengi á markaði áður en kaupsamningur er gerður.


Attachments

HB Grandi hf - starfskjarastefna.pdf HB Grandi hf - aðalfundur - ræða stjornarformanns.pdf HB Grandi hf - Samþykktir.pdf HB Grandi hf  - niðurstöður aðalfundar 2014.pdf