Ársreikningur Snæfellsbæjar 2013

Góð afkoma af rekstri Snæfellsbæjar árið 2013


Fimmtudaginn 3. apríl 2014 var ársreikningur Snæfellsbæjar 2013 afgreiddur í bæjarráð til fyrri umræðu í bæjarstjórn.  Eins og sveitarstjórnarlög kveða á um, skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn. Fyrri umræða um ársreikninginn var fimmtudaginn 3. apríl 2014 og síðari umræða verður þriðjudaginn 29. apríl n.k.

 

Ársreikningurinn er settur fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum en í B-hluta eru fyrirtæki sem eru í eigu sveitarfélagsins og eru rekin sem fjárhagslega sjálfstæðar einingar, sem eru: Félagsheimilið Klifi, Félagsheimilið Röst, Veitustofnanir Snæfellsbæjar, Hafnarsjóður Snæfellsbæjar, Húsnæðisnefnd Snæfellsbæjar, Leiguíbúðir með hlutareign og Dvalarheimilið Jaðar.

  

Rekstur Snæfellsbæjar góður

Rekstur Snæfellsbæjar gekk vel á árinu og var rekstrarniðurstaðan nokkuð betri en áætlun gerði ráð fyrir.

 

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu um 1.847  millj. króna samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi fyrir A- og B-hluta en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum um 1.735 millj. króna. Rekstrartekjur A- hluta námu um 1.460 millj. króna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum um 1.387 millj. króna.

 

Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A- og B-hluta var jákvæð að fjárhæð um 165 millj. króna en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir jákvæðri afkomu upp á 61,4 millj. króna. Rekstrarafkoman varð því töluvert betri en áætlun gerði ráð fyrir, eða sem nemur 103,6 millj. króna.  Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð að fjárhæð 107,7 millj. króna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir jákvæðiri afkomu upp á 61,9  millj. króna. Afkoma A-hluta varð því betri sem nemur 45,8 millj. króna.  Eigið fé sveitarfélagsins í árslok nam 2.390 millj. króna skv. efnahagsreikningi en þar af nam eigið fé A-hluta 1.915 millj. króna.

 

Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins námu um 850,6 milljónum króna en starfsmannafjöldi sveitarfélagsins nam 147 stöðugildum í árslok.

 

Veltufé frá rekstri var 184 millj. króna og veltufjárhlutfall er 1,38.  Handbært frá rekstri var 199 millj. króna.

 

Heildareignir bæjarsjóðs námu um 3.333 millj. króna og heildareignir sveitarfélagsins í samanteknum ársreikningi um 4.203 millj. króna í árslok 2013. Heildarskuldir bæjarsjóðs námu um 1.419 millj. króna og í samanteknum ársreikningi um 1.813 millj. króna, og hækkuðu þar með milli ára um 97 milljónir.  Eigið fé bæjarsjóðs nam um 1.915 millj. króna og eigið fé í samanteknum reikningsskilum nam um 2.390 millj. króna í árslok 2013.  Eiginfjárhlutfall er 57,44% á á árinu 2013 en var 57,50 árið áður.

 

Fjárfestingarhreyfingar voru 261,3 milljónir og fjármögnunarhreyfingar 6,0 milljónir á árinu 2013. Snæfellsbær fjárfesti á árinu fyrir 261,3 milljónir í varanlegum rekstrarfjármunum og ný lán voru tekin að upphæð 171,3 milljónir.  Greidd voru niður lán að fjárhæð 165,3 milljónir.

Hlutfall reglulegra tekna af heildarskuldum og skuldbindingum er 87,62% hjá sjóðum A-hluta, en var 82,8% árið 2012, og 90,62% í samanteknum ársreikningi en var 88,84 árið 2012.  Skv. 64. gr. 2. málsgr. sveitarstjórnarlaga á þetta hlutfall ekki að vera hærra en 150%

Álagningarhlutfall útsvars var 14,48 %. Álagningahlutfall fasteignaskatts nam 0,44% á íbúðarhúsnæði og álagningarhlutfall á aðrar fasteignir nam 1,55%.

Nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri, Kristinn Jónasson, í síma 433-6900, eða á kristinn@snb.is

Hægt verður að nálgast ásreikninginn á bæjarskrifstofunni Klettsbúð 4, Hellissandi, sími 433-6900. Einnig á heimasíðu Snæfellsbæjar, www.snb.is.


Attachments

Ársreikningur Snæfellsbæjar 2013, samstæða.pdf Lykiltölur Snæfellsbær ár 2013.pdf