Ársreikningur Stykkishólmsbæjar 2013


Í dag 10. apríl 2014 var ársreikningur Stykkishólmbæjar 2013 tekinn til fyrri umræðu í bæjarráði. Eins og sveitarstjórnarlög kveða á um, skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn. Fyrri umræða í bæjarstjórn verður 30. apríl n.k. og  seinni umræða verður 15. maí 2014.

Í reglugerð nr. 944/2000, um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga, sem tók gildi 1. janúar 2001, eru ákvæði um reikningsskil sveitarfélaga. Þar er gert ráð fyrir að sveitarfélög hagi bókhaldi sínu og reikningsskilum í samræmi við ákvæði laga um bókhald nr. 145/1994 og ársreikninga nr. 144/1994 að svo miklu leyti sem sveitarstjórnarlög mæla ekki fyrir á annan veg eða reglugerðir settar á grundvelli þeirra.  Ársreikningar sveitarfélaga skulu byggðir á almennum reikningsskilaaðferðum.

 

Ársreikningur Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2013 byggir á sömu reikningsskilaaðferðum og árið áður í samræmi við framangreind lög og reglur.

Helstu lykiltölur:

Rekstrartekjur ársins 2013 Sveitarsjóður Samantekið
í þús. k.r. A hluti A og B hluti
        Ársreikningur                 Áætlun       Ársreikningur                Áætlun
         
Rekstrartekjur 855.466 850.759 924.266 922.223
Rekstrargjöld án afskrifta 768.610 744.185 797.092 769.515
Rekstrarniðurstaða án fjármagns liða 86.856 106.574 127.174 152.708
Afskriftir -41.426 -37.099 -56.651 -52.275
Fjármagnsliðir -59.891 -67.494 -88.791 -96.333
Rekstrarniðurstaða -14.461 1.981 -18.268 4.100
Efnahagur samstæðu Sveitarsjóður Samantekið
pr. 31.12.2013 í þús. k.r. A hluti A og B hluti
        Ársreikningur                Fyrra ár      Ársreikningur               Fyrra ár
         
Eignir        
Fastafjármunir 2.003.657 2.003.549 2.187.506 2.185.393
Veltufjármunir 281.575 299.534 103.367 130.704
Eignir samtals 2.285.232 2.303.083 2.290.873 2.316.097
         
Skuldir og eigið fé        
Eigið fé 1.045.676 1.051.785 853.985 863.902
Skuldbindingar 217.504 209.859            217.504            209.859
Langtímaskuldir 857.740 846.727 1.017.483 1.013.490
Skammtímaskuldir 164.312 194.712 201.901 228.846
Skuldir og eigið fé samtals 2.285.232 2.303.083 2.290.873 2.316.097
Sjóðsstreymi ársins Sveitarsjóður Samantekið
2013 í þús. kr. A hluti A og B hluti
  Ársreikningur Áætlun Ársreikningur Áætlun
         
Rekstrarniðurstaða -14.461                    1.981 -18.269 4.100
Veltufé frá rekstri 70.486 74.217 85.845 106.242
Handbært fé frá rekstri 37.398 89.962 53.598 121.242
Fjárfestingarhreyfingar -32.517 -35.100 -41.019 -46.390
Fjármögnunarhreyfingar -33.466 -23.893 -41.164 -37.728
Hækkun á handbæru fé -28.585 30.969 -28.585 37.124
         
Í hlutfalli við rekstrartekjur Sveitarsjóður Samantekið
  A hluti A og B hluti
  Ársreikningur Áætlun Ársreikningur Áætlun
         
Skatttekjur 60,54% 59,38% 58,83% 56,75%
Framlög jöfnunarsjóðs 21,21% 20,92% 19,63% 19,30%
Aðrar tekjur 18,24% 27,91% 23,09% 25,75%
Samtals 99,99% 108,46% 101,55% 101,80%
         
Laun og launatengd gjöld 57,56% 55,02% 54,36% 50,76%
Lífeyrisskuldbinding, breyting 0,00% 0,00% 0,00% 0,00%
Annar rekstrarkostnaður 32,29% 35,43% 31,88% 32,69%
Afskriftir 4,84% 6,14% 6,13% 5,67%
Fjármagnsliðir, nettó 7,00% 11,32% 9,61% 10,45%
Gjöld samtals 101,69% 107,91% 101,98% 99,57%
Rekstrarniðurstaða, (neikvæð) -1,70% 7,91% -0,43% 2,23%
         
Í krónum á íbúa Ársreikningur Áætlun Ársreikningur Áætlun
Rekstur        
         
Rekstrartekjur samtals: 769.304 765.071 831.175 829.338
Rekstrargjöld og fjármagnliðir: 782.309 763.290 847.603 825.651
Rekstrarniðurstaða, (neikvæð) -13.005 1.782 -16.428 3.687
         
Í þúsundum á íbúa Ársreikningur Ársreikningur Ársreikningur Ársreikningur
Efnahagur 2013 2012 2011 2010
         
Eignir                     2.055                    2.071 2.036 2.073
Eigið fé                      940                      946 885 956
Skuldir og skuldbindingar                    1.115                  1.126                 1.150 1.118
         
 Ábyrgðir og skuldbindingar                      148               164                  160                   167
 utan efnahags        
         
Aðrar lykiltölur 2013 2012 2011 2010
         
Veltufjárhlutfall 1,71 1,54 1,36 1,50
Eiginfjárhlutfjall 45,76% 45,67% 43,47% 46,11%
Íbúatala 1.desember 1.095 1.112 1.108                    1.100

 

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 922,2 millj. kr. samkvæmt samanteknum ársreikningi fyrir A- bæjarsjóð og B- hluta stofnanir og fyrirtæki, en þar af námu rekstrartekjur A-hluta þ.e. bæjarsjóðs 855,5 millj. kr.

Rekstrargjöld A og B hluta námu 797,1 millj. Þar af námu rekstrargjöld A-hluta bæjarsjóðs 768,6 millj. að meðtöldum hækkunum vegna lífeyrisskuldbindinga starfsfólks. Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs var neikvæð um 14,5 millj.  samkvæmt ársreikningi  en neikvæð um 18,3 millj. kr. í  samanteknum ársreikningi A og B hluta. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2013 nam, eftir að lífeyrisskuldbindingar höfðu verið dregnar frá, 854,0 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi, en þar af nam eigið fé bæjarsjóðs 1.045,7 millj. kr.

 

Rekstarafkoma samantekins ársreiknings A og B hluta er neikvæð um 18,3 millj. kr. miðað við 4,5 millj. kr. hagnað á árinu 2012.

Meginátæður eru fyrir þessu eru:

 

  1. Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs A-hluti var neikvæð um 14,5  millj. 2013 miðað við 11,0 millj. kr. hagnað á árinu 2012.  Helstu ástæður þessarar rekstrarniðurstöðu má rekja til þess að rekstartekjur hækkuð aðeins um 9,7 milljónum kr. milli ára, meðan rekstarútgjöld hækkuðu um 35,1 milljónum kr. vegur þar þyngst hækkun launa og lífeyrisskuldbindinga.

 

  1.  Í öðru lagi er jákvætt að Hafnarsjóður var rekinn með u.þ.b. 2,4 millj. kr. hagnaði miðað við 3,1 milljón kr. hagnað árinu á undan.

 

  1. Í þriðja lagi skilar Fráveita 1,7 milljón kr. hagnaði miðað við 0,7 milljón kr. hagnað á árinu 2012.

 

  1. Síðast en ekki síst þá hefur skuldahlutfall miðað við tekjur batnað milli ára og er komið niður fyrir 150% af skatttekjum þ.e. í 147,2%.

 

Helstu fjárfestingarhreyfingar eru samtals 41,0 milljónir kr. m.a. skólalóð 7,6 milljónir kr., stígar í Súgandisey 6,7 milljónir kr.og  nýtt hlutafé í Jeratúni að upphæð 7,3 milljónir  vega þyngst.

Álagningarhlutfall útsvars var 14,48%. Álagningarhlutfall fasteignaskatts var 0,43% á íbúðarhúsnæði.

Álagningarhlutfall á aðrar fasteignir var 1,65%. Ársreikningurinn í heild sinni verður birtur  á heimasíðu Stykkishólmbæjar.

 

 

Nánari upplýsingar veitir: Þór Örn Jónsson, bæjarritari,  í síma 433-8100

 


Attachments

Sth bæjarsj-samstæða 13 - 2.pdf