Tilkynning frá Sandgerðisbæ varðandi uppgreiðslu á skuldabréfum 1. fl. 2003.


Það tilkynnist hér með að Sandgerðisbær  mun greiða upp þann 15. júní  skuldabréf Sandgerðisbæjar 1. Fl. 2003. Auðkenni flokksins í Kauphöll Íslands er  SANB 03 1.  

Samkvæmt skilmálum um skuldabréfaflokkinn er skuldara heimilt að greiða lánið upp á hvaða gjalddaga sem er frá og með 40. gjalddaga. Uppgreiðsluálag er 0,1% af uppreiknuðum höfuðstól bréfsins fyrir hvert ár sem eftir er af bréfinu.

 

Að lokinni uppgreiðslu mun Sandgerðisbær óska eftir afskráningu skuldabréfaflokksins úr Kauphöll og Verðbréfaskráningu Íslands.

 

Nánari upplýsingar gefur Elísabet Þórarinsdóttir,

fjármálastjóri Sandgerðisbæjar, s. 420 7555.