Árshlutauppgjör Farice fyrir tímabilið 1. janúar - 30. júní 2014


Batnandi afkoma Farice fyrri hluta árs 2014.

Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) jókst um 10,4% frá sama tíma á fyrra ári og nam 3.6 milljónum evra.  Heildartekjur námu 6,6 milljónum evra og jukust um 8,7% frá fyrra ári.  Heildarkostnaður jókst um 6,6%.  Eiginfjárhlutfall var 43,4% 30.júní s.l.

Fjármagnskostnaður var 2,9 milljónir evra, þar af er 1,1 milljón evra reiknaður gengismunur vegna styrkingar íslensku krónunnar en helsta lán félagsins er í íslenskum krónum.  Afskriftir námu 3,7 milljónum evra.  Tap félagsins varð 2,9 milljónir evra og minnkaði um 1,6 milljónir evra.

 

Frekari upplýsingar:

Ómar Benediktsson 585 9701


Attachments

Árshlutareikningur janúar-júní 2014.pdf