Ársreikningur Stykkishólmsbæjar 2014


Í dag 15. apríl 2015 var ársreikningur Stykkishólmbæjar 2014 tekinn til fyrri umræðu í bæjarráði. Eins og sveitarstjórnarlög kveða á um, skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn. Fyrri umræða í bæjarstjórn verður 30. apríl n.k. og  seinni umræða verður 13. maí 2015.

 

Í reglugerð nr. 944/2000, um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga, sem tók gildi 1. janúar 2001, eru ákvæði um reikningsskil sveitarfélaga. Þar er gert ráð fyrir að sveitarfélög hagi bókhaldi sínu og reikningsskilum í samræmi við ákvæði laga um bókhald nr. 145/1994 og ársreikninga nr. 144/1994 að svo miklu leyti sem sveitarstjórnarlög mæla ekki fyrir á annan veg eða reglugerðir settar á grundvelli þeirra.  Ársreikningar sveitarfélaga skulu byggðir á almennum reikningsskilaaðferðum.

 

Ársreikningur Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2014 byggir á sömu reikningsskilaaðferðum og árið áður í samræmi við framangreind lög og reglur.

 

Helstu lykiltölur:

 

Rekstrartekjur ársins 2014 Sveitarsjóður Samantekið
í þús. k.r. A hluti A og B hluti
  Ársreikningur Áætlun Ársreikningur Áætlun
         
Rekstrartekjur 890.982 904.494 961.454 975.163
Rekstrargjöld án afskrifta 782.887 794.690 813.901 822.674
Rekstrarniðurstaða án fjármagns liða 108.095 109.804 147.553 152.489
Afskriftir -40.919 -41.006 -54.437 -56.193
Fjármagnsliðir -39.291 -53.020 -57.318 -78.275
Rekstrarniðurstaða 27.885 15.778 35.798 18.021
Efnahagur samstæðu Sveitarsjóður Samantekið
pr. 31.12.2014 í þús. k.r. A hluti A og B hluti
  Ársreikningur Fyrra ár Ársreikningur Fyrra ár
         
Eignir        
Fastafjármunir 1.982.818 2.003.657 2.175.291 2.187.506
Veltufjármunir 327.099 281.575 131.973 103.367
Eignir samtals 2.309.917 2.285.232 2.307.264 2.290.873
         
Skuldir og eigið fé        
Eigið fé 1.103.806 1.045.676 920.030 853.905
Skuldbindingar 215.969 217.504            215.969            217.504
Langtímaskuldir 830.106 857.740 973.860 1.017.483
Skammtímaskuldir 160.036 164.312 197.405 201.981
Skuldir og eigið fé samtals 2.309.917 2.285.232 2.307.264 2.290.873
Sjóðsstreymi ársins Sveitarsjóður Samantekið
2014 í þús. kr. A hluti A og B hluti
  Ársreikningur Áætlun Ársreikningur Áætlun
         
Rekstrarniðurstaða 27.884              15.778 35.798 18.021
Veltufé frá rekstri 83.003 93.166 108.693 113.596
Handbært fé frá rekstri 71.001 91.666 92.819 112.096
Fjárfestingarhreyfingar -3.113 -11.250 -15.623 -22.500
Fjármögnunarhreyfingar -37.243 -43.249 -46.550 -48.249
Hækkun á handbæru fé 30.645 37.167 30.646 41.347
         
Í hlutfalli við rekstrartekjur Sveitarsjóður Samantekið
  A hluti A og B hluti
  Ársreikningur Áætlun Ársreikningur Áætlun
         
Skatttekjur 62,59% 60,37% 60,81% 56,00%
Framlög jöfnunarsjóðs 22,09% 20,56% 20,47% 19,07%
Aðrar tekjur 15,32% 19,07% 18,72% 24,93%
Samtals 100,00% 100,00% 100,00% 100,00%
         
Laun og launatengd gjöld 58,15% 58,28% 55,04% 55,19%
Lífeyrisskuldbinding, breyting 0,00% 0,00% 0,00% 0,00%
Annar rekstrarkostnaður 29,72% 29,58% 29,61% 29,18%
Afskriftir 4,59% 4,53% 5,66% 5,76%
Fjármagnsliðir, nettó 4,41% 5,86% 5,96% 8,03%
Gjöld samtals 96,87% 98,25% 96,27% 98,16%
Rekstrarniðurstaða, (neikvæð) 3,13% 1,75% 3,73% 1,84%
         
Í þús. á íbúa Ársreikningur Áætlun Ársreikningur Áætlun
Rekstur        
         
Rekstrartekjur samtals: 805 881 869 881
Rekstrargjöld og fjármagnliðir: 779 865 836 865
Rekstrarniðurstaða, (neikvæð) 26 16 33 16
         
Í þúsundum á íbúa Ársreikningur Ársreikningur Ársreikningur Ársreikningur
Efnahagur 2014 2013 2012 2011
         
Eignir      2.087       2.055 2.071 2.036
Eigið fé           997           940 946 885
Skuldir og skuldbindingar               1.089              1.115                        1.126 1.150
         
 Ábyrgðir og skuldbindingar           167               148                  164                   160
 utan efnahags        
         
Aðrar lykiltölur 2014 2013 2012 2011
         
Veltufjárhlutfall                  2,04                 1,71 1,54 1,36
Eiginfjárhlutfjall 47,79% 45,76% 45,67% 43,47%
Íbúatala 1.desember 1.107 1.095 1.112                1.108

 

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 961,5 millj. kr. samkvæmt samanteknum ársreikningi fyrir A- bæjarsjóð og B- hluta stofnanir og fyrirtæki, en þar af námu rekstrartekjur A-hluta þ.e. bæjarsjóðs 891,0 millj. kr.

Rekstrargjöld A og B hluta námu 813,9 millj. Þar af námu rekstrargjöld A-hluta bæjarsjóðs 782,9 millj. að meðtöldum hækkunum vegna lífeyrisskuldbindinga starfsfólks. Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs var jákvæð um 27,9 millj.  samkvæmt ársreikningi  en jákvæð um 35,8 millj. kr. í  samanteknum ársreikningi A og B hluta. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2014 nam, eftir að lífeyrisskuldbindingar höfðu verið dregnar frá, 920,0 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi, en þar af nam eigið fé bæjarsjóðs 1.103,8 millj. kr.

 

 

Rekstarafkoma samantekins ársreiknings A og B hluta er

jákvæð um 35,8 millj. kr. miðað við 18,3 millj. kr. tap á árinu 2013. Meginátæður eru fyrir þessu eru:

 

  1. Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs A-hluti var jákvæð um 27,9  millj. 2014 miðað við 14,5 millj. kr. tap á árinu 2013.  Helstu ástæður þessarar rekstrarniðurstöðu má rekja til þess að rekstartekjur hækkuð aðeins um 70,0 milljónum kr. milli ára, meðan rekstarútgjöld hækkuðu um 49,0 milljónum kr. Auk þess lækkuðu fjármagnsgjöld um 31,5 milljónir króna á milli ára aðallega vegna minni verðbólgu.

 

  1.  Í öðru lagi er jákvætt að Hafnarsjóður var rekinn með u.þ.b. 6,3 millj. kr. hagnaði miðað við 2,4 milljón kr. hagnað árinu á undan.

 

  1. Í þriðja lagi skilar Fráveita 6,5 milljón kr. hagnaði miðað við 1,7 milljón kr. hagnað á árinu 2013.

 

  1. Síðast en ekki síst þá hefur skuldahlutfall miðað við tekjur batnað milli ára og er komið vel niður fyrir 150% af skatttekjum þ.e. í 136,3%.

Helstu fjárfestingarhreyfingar eru samtals 15,6 milljónir, þar af helstu framkvæmdir við hafnargerð endurbætur 5,8 milljónir kr. og nýtt hlutafé í Jeratúni að upphæð 6,8 milljónir, annað óskilgreint 3,0 milljónir.

Álagningarhlutfall útsvars var 14,52%. Álagningarhlutfall fasteignaskatts var 0,43% á íbúðarhúsnæði.

Álagningarhlutfall á aðrar fasteignir var 1,65%. Ársreikningurinn í heild sinni verður birtur  á heimasíðu Stykkishólmbæjar.

Nánari upplýsingar veitir: Þór Örn Jónsson, bæjarritari,  í síma 433-8100

 


Attachments

Sth bæjarsj-samstæða 14.pdf