Frestun viðskipta með sjóði Íslandssjóða


Íslandssjóðir hf. tilkynna hér með að stjórn félagsins hefur tekið ákvörðun um að fresta viðskiptum með hlutdeildarskírteini sjóða í rekstri Íslandssjóða hf.

 

Er þessi ákvörðun tekin í ljósi ákvörðunar Fjármálaeftirlitsins að stöðva viðskipti með skuldabréf einstakra verðbréfa í Kauphöll Íslands.

 

Sjóðirnir sem um ræðir eru:

Lausafjársafn

Veltusafn

Ríkissafn

Ríkisskuldabréf – Sjóður 5

Löng ríkisskuldabréf – Sjóður 7

Óverðtryggður sjóður ÍS

Fókus – Vextir

Skuldabréfasafn Íslandssjóða

IS Hlutabréfasjóðurinn

Úrvalsvísitala – Sjóður 6

Alpha hlutabréf

Eignasafn

Eignasafn – Ríki og Sjóðir

Einkasafn A

Einkasafn B

Einkasafn C

Einkasafn D

Einkasafn E