Ríkisútvarpið ohf. móttekur greiðslu vegna byggingarréttar og greiðir niður skuldir


Í dag barst Ríkisútvarpinu ohf. innborgun vegna sölu byggingarréttar á hluta lóðar félagsins við Efstaleiti að upphæð 800 milljónir króna. Fjármunirnir er nýttur til niðurgreiðslu skulda félagsins.

Eins og fram kom í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar þann 13. október sl., er sala byggingarréttar mikilvægur áfangi í fjárhagslegri endurskipulagningu Ríkisútvarpsins ohf. Áætlað er að ávinningur sölunnar í heild verði a.m.k. 1,5 milljarðar króna en hann ræðst af endanlega samþykktu deiliskipulagi. Nú er unnið að deiliskipulagi lóðarinnar á grundvelli vinningstillögu Arkþings um skipulag svæðisins. Kaupsamningurinn er gerður með fyrirvara um að ráðstöfunarheimild Ríkisútvarpsins yfir öllum lóðarréttindunum verði staðfest í samræmi við ákvæði þar um í fjáraukalögum fyrir árið 2015.

Í tilkynningum haustsins kom jafnframt fram að meðal hagræðingaaðgerða síðustu mánaða er endurskipulagning húsnæðismála RÚV, sem hefur minnkað við sig húsnæði í Útvarpshúsinu og leigt frá sér 2.750 fm til annarrar starfsemi. Þar kom einnig fram að nýlegt árshlutauppgjör félagsins sýnir jákvæðan viðsnúning í rekstri og að hagræðingaraðgerðir félagsins hafa skilað sér. Afkoma á tímabilinu 1.9.2014-31.8.2015 skilaði félagið hagnaði upp á 30,5 milljónir króna en tap ársins á undan (2013-2014) var 271 milljón króna eftir skatta. Rekstrarkostnaður lækkaði um 4,3% að raunvirði milli rekstrarára þrátt fyrir að kostnaður við dreifingu hækki á milli ára á grundvelli  samnings um stafræna dreifingu frá árinu 2013.