Íslandssjóðir hf. - Umsókn um töku tiltekinna hlutdeildarskírteina úr viðskiptum


Íslandssjóðir hf. hafa óskað eftir að hlutdeildarskírteini eftirfarandi sjóða í rekstri félagsins verði tekin úr viðskiptum á skipulegum verðbréfamarkaði Nasdaq Iceland:

 

  1. Ríkisskuldabréf – Sjóður 5
  2. Úrvalsvísitala – Sjóður 6
  3. Löng ríkisskuldabréf – Sjóður 7
  4. IS Hlutabréfasjóðurinn
  5. Sjóður 1 – Skuldabréf (sjóðurinn hefur verið í slitameðferð frá árinu 2010)
  6. Sjóður 11 – Fyrirtækjabréf (sjóðurinn hefur verið í slitameðferð frá árinu 2010)

 

Taka umræddra hlutdeildarskírteina úr viðskiptum mun ekki hafa nein áhrif á innlausn þeirra eða innlausnarvirði.

 

Tilkynnt verður um afstöðu Nasdaq Iceland til umsóknarinnar þegar hún liggur fyrir.

 

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Örn Ólafsson, fram­kvæmda­stjóri félagsins í síma 440-4593.