Góð afkoma af rekstri Snæfellsbæjar árið 2015


Fimmtudaginn 7. apríl 2016 var ársreikningur Snæfellsbæjar 2015 afgreiddur í bæjarráð til fyrri umræðu í bæjarstjórn.  Eins og sveitarstjórnarlög kveða á um, skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn. Fyrri umræða um ársreikninginn var fimmtudaginn 7. apríl 2016 og síðari umræða verður miðvikudaginn 4. maí n.k.

Ársreikningurinn er settur fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum en í B-hluta eru fyrirtæki sem eru í eigu sveitarfélagsins og eru rekin sem fjárhagslega sjálfstæðar einingar, sem eru: Félagsheimilið Klifi, Félagsheimilið Röst, Veitustofnanir Snæfellsbæjar, Hafnarsjóður Snæfellsbæjar, Húsnæðisnefnd Snæfellsbæjar, Leiguíbúðir með hlutareign og Dvalarheimilið Jaðar.

 

Rekstur Snæfellsbæjar góður

Rekstur Snæfellsbæjar gekk vel á árinu og var rekstrarniðurstaðan nokkuð betri en áætlun gerði ráð fyrir, eða um 188 millj. króna fyrir samantekinn rekstrarreikning A- og B-hluta.

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu um 2.078  millj. króna samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi fyrir A- og B-hluta en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum um 1.893 millj. króna. Rekstrartekjur A- hluta námu um 1.642 millj. króna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum um 1.493 millj. króna.

Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A- og B-hluta var jákvæð að fjárhæð um 188 millj. króna en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir jákvæðri afkomu upp á 47 millj. króna. Rekstrarafkoman varð því töluvert betri en áætlun gerði ráð fyrir, eða sem nemur 141 millj. króna.  Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð að fjárhæð 106,4 millj. króna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir jákvæðiri afkomu upp á 1,1  millj. króna. Afkoma A-hluta varð því betri sem nemur 105,3 millj. króna.  Eigið fé sveitarfélagsins í árslok nam 2.752 millj. króna skv. efnahagsreikningi en þar af nam eigið fé A-hluta 2.185 millj. króna.

Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins námu um 1.008 milljónum króna en starfsmannafjöldi sveitarfélagsins nam 133 stöðugildum í árslok.

Veltufé frá rekstri var 212 millj. króna og veltufjárhlutfall er 1,02.  Handbært frá rekstri var 258 millj. króna.

Heildareignir bæjarsjóðs námu um 3.467 millj. króna og heildareignir sveitarfélagsins í samanteknum ársreikningi um 4.485 millj. króna í árslok 2015. Heildarskuldir bæjarsjóðs námu um 1.282 millj. króna og í samanteknum ársreikningi um 1.733 millj. króna, og lækkuðu þar með milli ára um 41 milljónir.  Eigið fé bæjarsjóðs nam um 2.185 millj. króna og eigið fé í samanteknum reikningsskilum nam um 2.752 millj. króna í árslok 2015.  Eiginfjárhlutfall er 63,03% á á árinu 2015 en var 59,44% árið áður.

Snæfellsbær fjárfesti á árinu fyrir 219,2 milljónir í varanlegum rekstrarfjármunum og ný lán voru tekin að upphæð 41 milljónir. Greidd voru niður lán að fjárhæð 155,2 milljónir.

Hlutfall reglulegra tekna af heildarskuldum og skuldbindingum er 74,37% hjá sjóðum A-hluta, en var 84,62% árið 2014, og 76,80% í samanteknum ársreikningi en var 86,35% árið 2014.  Skv. 64. gr. 2. málsgr. sveitarstjórnarlaga á þetta hlutfall ekki að vera hærra en 150%.  Fjárhagsstaða Snæfellsbæjar verður því að teljast afar góð.

Álagningarhlutfall útsvars var 14,52%. Álagningahlutfall fasteignaskatts nam 0,44% á íbúðarhúsnæði og álagningarhlutfall á aðrar fasteignir nam 1,55%
 

Nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri, Kristinn Jónasson, í síma 433-6900, eða á kristinn@snb.is

Hægt verður að nálgast ásreikninginn á bæjarskrifstofunni Klettsbúð 4, Hellissandi, sími 433-6900. Einnig á heimasíðu Snæfellsbæjar, www.snb.is.


Attachments

Snæfellsbær 2015.pdf Snæfellsbær ár 2015.pdf