Breytingar á stjórn Landsbréfa hf.


Stjórn Landsbréfa hf. hefur í dag fallist á beiðni Sigurbjörns Jóns Gunnarssonar formanns stjórnar Landsbréfa hf. um tímabundið leyfi frá störfum frá 1. september nk. að telja. Sigurbjörn er framkvæmdastjóri Lyfju hf. en það fyrirtæki er nú að fara í opið söluferli. Þar sem ekki er útilokað að sjóðir á vegum Landsbréfa hf. muni taka þátt í söluferlinu óskaði Sigurbjörn eftir því við stjórn Landsbréfa hf. að hann fengi leyfi frá störfum til 31. desember 2016 eða á meðan á söluferlinu stendur til að það verði hafið yfir allan vafa þó svo að fjárfestingarákvarðanir sjóða í rekstri Landsbréfa komi að öllu jöfnu ekki inn á borð stjórnar.

Heiður Agnes Björnsdóttir varastjórnarmaður mun taka sæti í aðalstjórn félagsins á meðan á leyfi Sigurbjörns stendur og þá hefur stjórn félagsins ákveðið að Kristinn Ingi Lárusson gegni formennsku í stjórninni í fjarveru Sigurbjörns. Gert er ráð fyrir að Sigurbjörn komi aftur til starfa strax á nýju ári eða fyrr þá er söluferli Lyfju er lokið eða fyrir liggur að sjóðir Landsbréfa hf. séu ekki þátttakendur í söluferlinu.

Nánari upplýsingar veitir Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa hf. í síma 410-2500.