Fjárhagsáætlun Norðurþing 2017 og þriggja ára áætlun 2018-2020


Fjárhagsáætlun Norðurþings fyrir árið 2017 var samþykkt á sveitarstjórnarfundi í dag. Rekstrarafkoma A- og B hluta er áætluð jákvæð um 54 milljónir. Jafnframt var lögð fram þriggja ára áætlun 2018-2020.

Fjárhagsáætlunin er sett fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða aðalsjóð, eignasjóð og þjónustumiðstöð. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Dvalarheimi aldraðra sf., Félagslegar íbúðir, Hafnasjóður Norðurþings, Orkuveita Húsavíkur ohf., Leigufélagið Hvammur ehf., Sorpsamlag Þingeyinga ehf. og Fjárfestingafélag Norðurþings ehf.

Samkvæmt yfirliti um sjóðsstreymi á árinu 2017 verður veltufá frá rekstri A og B hluta um 480 milljónir og fjárfestingahreyfingar um 970 milljónir. Munar þar mestu um gatnagerð, slökkvistöð og framkvæmdir við höfnina vegna innviðauppbygginar fyrir iðnað á Bakka. Áætlunin gerir ráð fyrir að tekin verði ný lán vegna framkvæmdanna upp á 445 milljónir og afborganir lána verði um 230 milljónir. Handbært fé A og B hluta sveitarfélagsins verði þá 1.004 milljónir í lok árs.

Húsavík 22. nóvember 2016

Nánari upplýsingar veitir Gunnlaugur Aðalbjarnarson, fjármálastjóri í síma 464 6100


Attachments

Áætlun 2017 Samstæða 2017.pdf Áætlun 2017 3 ára áætlun.pdf Norðurþing tikynning 161122.pdf