Ársreikningur Norðurþings og stofnana fyrir árið 2016


Byggðaráð Norðurþings samþykkti ársreikning Norðurþings og stofnana sveitarfélagsins fyrir árið 2016 á fundi sínum  27. apríl 2017. Ársreikningurinn verður lagður fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn Norðurþings þann 2. maí næstkomandi.

Samkvæmt lögum ber að fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og fer síðari umræða fram þann 16. maí 2017, þar sem staðfesting sveitarstjórnar á ársreikningnum er fyrirhuguð.

Komi ekki fram mikilvægar viðbótarupplýsingar, sem geta haft áhrif á gerð ársreikningsins og/eða niðurstöður hans við afgreiðslu og samþykkt sveitarstjórnar munu endurskoðendur árita ársreikninginn með fyrirvaralausri áritun og sveitarstjórn staðfesta ársreikninginn í fyrirliggjandi mynd.


Attachments

Ársreikningur Norðurþings 2016.pdf