FORK 17 0901 – Beiðni um afskráningu


Stjórn Fagfjárfestasjóðsins ORK (sjóðurinn), útgefandi skuldabréfaflokksins FORK 17 0901, hefur óskað eftir því að skuldabréf, sem útgefin eru af sjóðnum, með auðkenni FORK 17 0901 (IS0000021897) (skuldabréfaflokkurinn), verði tekin úr viðskiptum hjá Nasdaq OMX Iceland hf., til samræmis við ákvörðun stjórnarfundar sjóðsins, dags. 24. ágúst 2017.

Hefur beiðni um afskráningu skuldabréfaflokksins, ásamt greinargerð stjórnar, verið send NASDAQ OMX Iceland hf., til samræmis við 2. mgr. 24. gr. laga nr. 110/207 um kauphallir og 21. gr. reglugerðar nr. 245/2006 um opinbera skráningu verðbréfa í kauphöll.

Nánari upplýsingar veitir Rekstrarfélag Virðingar hf. sem er rekstraraðili útgefanda í síma 5856500