FAST-1 slhf: FAST-2 ehf., dótturfélag FAST-1 slhf., selur eignina að Klettagörðum 13.


FAST-2 ehf.,dótturfélag FAST-1 slhf., hefur undirritað samning um sölu á eigninni
Klettagörðum 13, 104 Reykjavík. Kaupandi eignarinnar er N1 hf. Söluverð eignarinnar er 1.653 m.kr. Að sölunni frágenginni mun eignin ekki lengur standa til tryggingar á útgáfu skuldabréfa FAST-1 slhf. Í samræmi við stofngögn FAST-1 slhf. og verðbréfalýsingu vegna útgáfu skuldabréfa FAST-1 slhf. mun söluandvirði eignarinnar verða nýtt að fullu til niðurgreiðslu á skuldum félagsins.
 

Nánari  upplýsingar  veitir  Gísli  Reynisson,  framkvæmdarstjóri FAST-1 slhf. í gegnum netfangið gisli@contra.is eða símanúmerið 856 5111.