FAST-1 slhf. - Söluferli á eignum FAST-1 slhf.


Stjórn FAST-1 hefur ákveðið að bjóða til sölu eignasafn félagsins. Um er að ræða Katrínartún 2 og Borgartún 8-16, ásamt Skúlagötu 21, Vegmúla 3 og hluta af Skútuvogi 1. Samtals er eignasafnið um 44 þúsund fermetrar. Fasteignirnar eru í tveimur dótturfélögum Fast-1; HTO ehf. (Katrínartún 2 og Borgartún 8-16) og Fast-2 ehf. (Skúlagata 21, Vegmúli 3 og hluti af Skútuvogi 1).

Gert er ráð fyrir að fjárfestar skili tilboðum í félögin fyrir lok október 2017.

Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hefur umsjón með söluferlinu. Fjárfestar geta nálgast upplýsingar um skilyrði til þátttöku í söluferlinu, sölugögn og aðrar upplýsingar í gegnum netfangið fast1@islandsbanki.is.