FAST-1 slhf. - Uppgreiðsla skuldabréfaflokks FAST-1 12 1.


   

FAST-1 slhf. - Uppgreiðsla skuldabréfaflokks FAST 1 12 1.

Með vísan í skilmála og verðbréfalýsingu skuldabréfaflokksins FAST-1 12 1 hefur útgefandi ákveðið að nýta sér heimild til að greiða upp eftirstöðvar höfuðstóls skuldabréfsins. Útgefandi mun því á þriðjudaginn 2. október 2018 greiða upp eftirstöðvar skuldabréfsins, alls kr. 5.248.543.919 og auk þess greiða 1,5% uppgreiðslugjald af uppreiknuðu verðmæti skuldabréfanna samkvæmt skilmálum skuldabréfaflokksins. Í kjölfar uppgreiðslu skuldabréfaflokksins verður flokkurinn tekinn úr viðskiptum á skipulegum verðbréfamarkaði og afskráður í samráði við Nasdaq Iceland og Nasdaq verðbréfamiðstöð.

Nánari upplýsingar veita:

  * Kjartan Smári Höskuldsson, stjórnarformaður FAST-1 slhf. í gegnum netfangið  kjartan@islandssjodir.is eða símanúmerið 844 2950.

  * Gísli Reynisson, framkvæmdastjóri FAST-1 slhf. í gegnum netfangið gisli@contra.is eða símanúmerið 856 5111.