Fjárhagsáætlun Norðurþings 2019 og þriggja ára áætlun 2020-2022


 Fjárhagsáætlun Norðurþings 2019 og þriggja ára áætlun 2020-2022

Fjárhagsáætlun Norðurþings fyrir árið 2019 var samþykkt á fundi sveitarstjórnar Norðurþings í gær.
Rekstrarafkoma A og B hluta er áætluð jákvæð um 142 milljónir. Jafnframt var lögð fram þriggja ára áætlun 2020-2022.
Fjárhagsáætlunin er sett fram samkvæmt lögum og reglum um reikningsskil sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða aðalsjóð, eignasjóð og þjónustumiðstöð. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Dvalarheimi aldraðra sf., Félagslegar íbúðir, Hafnasjóður Norðurþings, Orkuveita Húsavíkur ohf., Leigufélagið Hvammur ehf. og Fjárfestingafélag Norðurþings ehf.
Samkvæmt yfirliti um sjóðsstreymi á árinu 2019 verður veltufá frá rekstri A og B hluta um 759 milljónir og fjárfestingahreyfingar um 776 milljónir. Munar þar mestu um byggingu nýrrar slökkvistöðvar og hafnaraðstöðu á Húsavík, félagslegar íbúðir, gatnagerð og framkvæmdir Orkuveitu Húsavíkur. Áætlunin gerir ráð fyrir að tekin verði ný lán vegna framkvæmdanna upp á 260 milljónir og afborganir lána verði um 260 milljónir. Handbært fé A og B hluta sveitarfélagsins verði þá 388 milljónir í lok árs.

Húsavík 14. desember 2018
Nánari upplýsingar veitir Drífa Valdimarsdóttir, fjármálastjóri í síma 464 6100

Viðhengi


Attachments

Áætlun Norðurþings 2019_samstæða Þriggja ára áætlun Norðurþings_A hluti_2020-2022 Þriggja ára áætlun Norðurþings_A og B hluti_2020-2022