Fjárhagsáætlun Norðurþings 2020 og þriggja ára áætlun 2021-2023


Fjárhagsáætlun Norðurþings fyrir árið 2020 var samþykkt á fundi sveitarstjórnar Norðurþings í dag. Jafnframt var lögð fram þriggja ára áætlun 2021-2023.

Rekstrarafkoma A og B hluta er áætluð jákvæð um 64 milljónir.
Fjárhagsáætlunin er sett fram samkvæmt lögum og reglum um reikningsskil sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða aðalsjóð, eignasjóð og þjónustumiðstöð. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Dvalarheimili aldraðra sf., Félagslegar íbúðir, Hafnasjóður Norðurþings, Orkuveita Húsavíkur ohf., Leigufélagið Hvammur ehf. og Fjárfestingafélag Norðurþings ehf.

Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi á árinu 2020 verður veltufé frá rekstri A og B hluta um 710 milljónir og fjárfestingahreyfingar um 497 milljónir. Helstu fjárfestingar á árinu eru gatnaframkvæmdir við Reykjaheiðarveg, framlag til byggingar nýs hjúkrunarheimilis á Húsavík, framlag til nýs íbúðakjarna fyrir fatlaða einstaklinga, endurnýjun lagna hjá Orkuveitu Húsavíkur og framkvæmdir við Húsavíkurhöfn.
Áætlunin gerir ráð fyrir að tekin verði ný lán vegna framkvæmdanna og til endurfjármögnunar á eldri lánum upp á 390 milljónir og afborganir lána verði um 388 milljónir. Handbært fé A og B hluta sveitarfélagsins verði þá 764 milljónir í lok árs.

Húsavík 4. desember 2019

Nánari upplýsingar veitir Drífa Valdimarsdóttir, fjármálastjóri í síma 464 6100

Viðhengi


Attachments

Áætlun Norðurþings 2020_samstæða Þriggja ára áætlun Norðurþings_A hluti_2021-2023 Þriggja ára áætlun Norðurþings_A og B hluti_2021-2023