Marel: 2019 Fjárfestakynning


Marel hf. birti ársuppgjör 2019 eftir lokun markaðar þann 5. febrúar 2020. Meðfylgjandi má finna 2019 fjárfestakynninguna sem farið verður yfir á afkomufundinum.

Fundur með markaðsaðilum – vefvarp og símafundur

Í dag, fimmtudaginn 6. febrúar 2019 kl. 8:30 verður haldinn afkomufundur með markaðsaðilum og fjárfestum. Þar munu Árni Oddur Þórðarson forstjóri og Linda Jónsdóttir fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á fjórða ársfjórðungi og árinu í heild sinni.

Fundinum er einnig vefvarpað beint á www.marel.com/webcast og upptaka verður aðgengileg á www.marel.com/IR eftir fundinn.

Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn:

  • IS: +354 800 7437 (Aðgangskóði ef hringt er frá Íslandi: 46320121)
  • NL: +31 20 721 9495
  • UK: +44 33 3300 9270
  • US: +1 833 526 8395

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita fjárfestatenglar Marel í gegnum netfangið IR@marel.com og í síma 563 8001.

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá félaginu starfa yfir 6000 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi. Marel velti 1,3 milljarði evra árið 2019 en árlega fjárfestir Marel um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið var skráð í Kauphöll Íslands árið 1992, en í júní 2019 fór fram tvíhliða skráning á hlutabréfum í félaginu í Euronext kauphöllinni í Amsterdam.

 

Viðhengi


Attachments

Marel Q4 2019 Investor Presentation_vF