Marel: Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2020 birt 20. apríl, rafrænn afkomufundur 21. apríl 2020


Marel hf. mun birta uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2020 eftir lokun markaðar þann 20. apríl 2020.

Rafrænn afkomufundur með markaðsaðilum

Þriðjudaginn 21. apríl 2020 kl. 8:30 verður haldinn afkomufundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta. Fundurinn verður eingöngu rafrænn en þar munu Árni Oddur Þórðarson forstjóri og Linda Jónsdóttir fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á fyrsta ársfjórðungi.

Fundinum verður vefvarpað beint á www.marel.com/webcast og upptaka verður aðgengileg á www.marel.com/ir eftir fundinn.

Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn:

  • IS: +354 800 7520
  • NL: +31 20 721 9496
  • UK: +44 33 3300 9268
  • US: +1 833 823 0586

Fjárhagsdagatal

  • 2F 2020 – 22. júlí 2020
  • 3F 2020 – 20. október 2020
  • 4F 2020 – 3. febrúar 2021

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið ir@marel.com og í síma 563 8001.

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá félaginu starfa um 6.300 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi. Marel velti um 1,3 milljarði evra árið 2019 en árlega fjárfestir Marel um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið var skráð í Kauphöll Íslands árið 1992, en í júní 2019 fór fram tvíhliða skráning á hlutabréfum í félaginu í Euronext kauphöllinni í Amsterdam.